Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna tilnefnd til blaðamannaverðlauna Árni Sæberg skrifar 6. mars 2026 13:55 Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna eru tilnefnd. Vísir Dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna hefur tilkynnt um þau sem sköruðu fram úr í faginu á síðasta ári og hljóta tilnefningu til verðlauna fyrir vinnu sína. Þrír blaðamenn Sýnar hlutu tilnefningu að þessu sinni.
Veitt eru verðlaun í fjórum flokkum og er þrennt tilnefnt í hverjum flokki. Verðlaunaafhending fer fram í Hafnarhúsi við Tryggvagötu í Reykjavík, föstudaginn 13. mars 2026, klukkan 18:00. Tilnefningarnar og rökstuðningur fyrir þeim eru sem hér segir: Viðtal ársins 2025 Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Heimildin Fyrir viðtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Ingibjörg Dögg fylgir Höllu í lífi og starfi um nokkurra daga skeið og gefur það lesandanum nýja og áhugaverða sýn á forsetann Höllu og konuna á bak við embættið. Halla greinir frá sársaukafullri reynslu í barnæsku og kynferðisofbeldi sem hefur markað líf hennar. Í viðtalinu felast mikilvæg skilaboð frá Höllu til þolenda um að kynferðisofbeldi þurfi ekki að skilgreina þá um ókomna tíð. Jakob Bjarnar Grétarsson, Sýn Fyrir viðtal á Vísir.is við Friðrik Ólafsson, stórmeistara í skák, í tilefni 90 ára afmælis hans. Jakob ávinnur sér traust þessa hlédræga og hógværa manns og úr verður skemmtilegt og fróðlegt viðtal þar sem Friðrik rekur lífshlaup sitt, viðurkennir að hafa verið undrabarn í skák, segir frá sambandi sínu við Bobby Fischer og ræðir breytingar sem hafa orðið á skákíþróttinni. Viðtalið er fallegur og fróðlegur minnisvarði um glæstan feril þessa merka skákmanns. Sunna Sæmundsdóttir, Sýn Fyrir viðtal í Kompás við Birgi Karl Óskarsson og Iðunni Eiríksdóttur, foreldra Bryndísar Klöru sem lést eftir stunguárás á menningarnótt 2024. Birgir og Iðunn deila sögu sinni og harmi á erfiðustu stundu lífs síns. Þau draga ekkert undan í frásögn af atburðum hinnar örlagaríku nætur en á sama tíma veita þau þjóðinni innsýn í fallegt lífshlaup Bryndísar Klöru. Viðtalið er áhrifamikið og stuðlaði að umræðum og aðgerðum sem beinast að því að vinna að öryggi og velferð ungmenna. Umfjöllun ársins 2025 Esther Jónsdóttir, Heimildin Fyrir lifandi og afar fræðandi umfjöllun um ferð hennar með hópi vísindamanna á einn afskekktasta stað landsins, Esjufjöll í Vatnajökli. Esther tekst einstaklega vel að hrífa lesendur með sér, veita innsýn og vekja áhuga á vísindalegum uppgötvunum og sérhæfðum smáatriðum um gróðurfar og áhrif loftslagsbreytinga á samspil jökla og náttúru. Kristín Sigurðardóttir og Ingvar Haukur Guðmundsson, Rúv Fyrir vandaða og yfirgripsmikla umfjöllun í Kveik um afleiðingar alvarlegrar e.coli matarsýkingar sem upp kom í leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. Kristín fylgir málinu eftir af festu, varpar nýju ljósi á bæði ástæður og afleiðingar smitsins, talar við fjölda fólks, spyr óvæginna spurninga og sýnir áður óbirt myndbönd og ljósmyndir. Umfjöllunin er skýr, vel fram sett og nýtir kosti myndmiðilsins vel. Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir, Rúv Fyrir hlaðvarpsþáttaröðina Konungssinnar í Kísildal sem fjallar um uppruna þeirra hugmyndafræðilegu sviptinga sem nú eiga sér stað í Bandaríkjunum. Þættirnir eru fræðandi og afhjúpandi og ljóst að þáttastjórnendur hafa lagt í mikla heimildavinnu. Þetta margslungna og flókna umfjöllunarefni er sett fram í lifandi samtalsformi sem gerir efnið aðgengilegt og spennandi. Rannsóknarblaðamennska ársins 2025 Freyr Gígja Gunnarsson og Helgi Seljan, Rúv Fyrir umfjöllun í Speglinum um umfangsmikil viðskipti embættis ríkislögreglustjóra við ráðgjafafyrirtæki sem vann afar fjölbreytileg verkefni fyrir embættið og fékk háar upphæðir greiddar. Með mikilli upplýsingaöflun var dregin upp skýr mynd af málinu. Umfjöllunin varpaði ljósi á meðferð á opinberu fé hjá stórri ríkisstofnun og leiddi til atburðarásar sem endaði með því að ríkislögreglustjóri hætti störfum. Gunnar Gunnarsson og Viðar Guðjónsson, Austurglugginn og Morgunblaðið Fyrir umfjöllun um stöðu geðheilbrigðismála sem unnin var í samstarfi Morgunblaðsins og Austurgluggans og birtist á báðum. Upplýst var að maður sem banaði hjónum í Neskaupstað árið 2024 átti að vera í gæslu. Umfjöllunin beindi kastljósinu að stöðu geðheilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og leiddi til þess að yfirvöld ákváðu að fjölga úrræðum fyrir einstaklinga sem hvorki áttu heima í fangelsi né á hefðbundinni geðmeðferðarstofnun. Helgi Seljan og Árni Þór Theodórsson, Rúv Fyrir umfjöllun í Kveik um umfangsmiklar njósnaaðgerðir sem stóðu yfir vikum saman haustið 2012 að undirlagi Björgólfs Thors Björgólfssonar. Afhjúpað var hvernig fylgst var með fólki sem hugðist leita réttar síns gagnvart Björgólfi, það hlerað og elt af fyrrverandi og þáverandi lögreglumönnum. Umfjöllunin leiddi til athugunar eftirlitsnefndar um störf lögreglu, persónuverndar, dómsmálaráðherra og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á verklagi lögreglu. Blaðamannaverðlaun ársins 2025 Kjartan Kjartansson, Sýn Fyrir fréttaskýringar um loftslagsmál á Vísir.is. Flókin umfjöllunarefni skýrð á mannamáli án þess að afsláttur sé gefinn af fagmennsku. Kjartan hefur sýnt elju við öflun gagna og fylgt málum vel eftir. Hann afhjúpaði misskilning stjórnvalda á losunarmarkmiði Íslands í samstarfi við Evrópusambandið sem varð til þess að íslensk stjórnvöld þurftu að endurskoða markmið sín vegna Parísarsamningsins. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, Morgunblaðið Fyrir ítarlega umfjöllun á mbl.is um neyðarástand í málefnum barna í viðkvæmri stöðu. Sólrún Lilja hefur sýnt einstaka þrautseigju við að vekja athygli á þessum vanda með ítrekuðum afhjúpunum, viðamikilli umfjöllun og eftirfylgni með málum. Hún hefur krafið stjórnvöld svara og þannig stuðlað að löngu tímabærum breytingum í þessum viðkvæma málaflokki. Nokkrar greinar úr umfjöllun Sólrúnar Lilju: Börnin sem kerfið brást -Svona smygla börnin inn fíkniefnum -Það er galið að barnið mitt sé dáið Þóra Tómasdóttir, Rúv Fyrir fréttaskýringar í þættinum Þetta helst. Þóra er næm á fréttaefni sem öðrum sést yfir og beitir ríkulegri frásagnargáfu við framsetningu þess. Dæmi um þetta er saga írska fiðluleikarans Sean Bradley sem hvarf sporlaust frá Íslandi, hálfíslensku dragdrottningarinnar Heklínu sem fannst látin við dularfullar aðstæður í Lundúnum, Sofiu Kolesnikovu sem fannst látin á Selfossi og unglingsstúlku sem varð fyrir barðinu á ofbeldishópnum 764. Dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna 2025 skipa Pálmi Jónasson (formaður), Arndís Þorgeirsdóttir, Brynhildur Ólafsdóttir og Steinunn Stefánsdóttir.
Fjölmiðlar Sýn Mest lesið Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fleiri fréttir Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Sjá meira