Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Árni Sæberg skrifar 2. mars 2026 12:28 Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í síðustu viku. Vísir/Vilhelm Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið sýknaður af ákæru fyrir brot í nánu sambandi með því að hafa tekið þáverandi sambýliskonu sína og barnsmóður hálstaki. Sannað þótti að hann hefði tekið konuna hálstaki en brot hans heimfært undir ákvæði hegningarlaga um minni háttar líkamsárás og hann því sýknaður vegna fyrningar brotsins.
Í ákæru á hendur manninum segir að hann hafi á alvarlegan hátt ógnað lífi, heilsu og velferð þáverandi sambúðarmaka síns og barnsmóður á heimili þeirra, með því að hafa tekið hana hálstaki og þrengt þannig að öndunarvegi hennar og gripið um framhandleggi hennar, með þeim afleiðingum að hún hlaut mar á hálsi undir kjálkabarði vinstra megin og niður hálsinn og mar víðsvegar um báða framhandleggi. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp 24. febrúar og birtur í dag, segir að að maðurinn hafi neitað sök í málinu, engin vitni hafi verið að hinni ætluðu háttsemi hans og sönnun í málinu ráðist því fyrst og fremst af mati á munnlegum framburðum mannsins og konunnar og því hvort framburðirnir fái stoð í öðrum gögnum málsins. Erfitt ástand á heimilinu Maðurinn hafi fyrir dómi sagst ekki muna sérstaklega eftir umræddu kvöldi, í mars árið 2022. Hann hafi aftur á móti lýst því að erfitt ástand hafi lengi ríkt á heimilinu vegna drykkju konunnar og hegðunar hennar undir áhrifum. „Honum hafi staðið ógn af henni við þær aðstæður og oft þurft að taka um hendur hennar til að verja sig. Hann hafi hins vegar aldrei beitt hana ofbeldi og kvaðst ekki kannast við að hafa tekið hana hálstaki. Gætir hér misræmis miðað við framburð ákærða hjá lögreglu 12. desember 2024, en þar greindi ákærði frá því að brotaþoli hafi undir áhrifum veist að honum með ásökunum og beitt hann líkamlegu ofbeldi og kvaðst ákærði ekki vita hvort það hafi einhvern tímann endað með því að hann hafi tekið hana hálstaki, það gæti verið en hann viti það ekki.“ Síðar í skýrslunni hafi hann sagst ekki geta fullyrt hvort hann hafi í eitthvert skipti tekið utan um hálsinn á konunni, en það hafi þá verið til þess að verja sig. Þá hafi hann sagt það geta passað að hann hafi skýrt vitni, vinkonu konunnar, frá því að hann hafi verið að reyna að verja sig vegna þess að konan hafi verið mjög ölvuð og hann hafi gripið um hálsinn áhenni. „Sú skýring ákærða fyrir dómi að hann hafi ekki áttað sig á merkingu hugtaksins hálstak er hann gaf skýrslu hjá lögreglu, heldur átt við það að útrétt hönd hans í varnarskyni kunni að hafa lent á hálsi brotaþola, þykir ótrúverðug. Framangreint misræmi í frásögn ákærða fyrir lögreglu og fyrir dómi varðandi það hvort hann hafi hugsanlega beitt brotaþola hálstaki veikir framburð ákærða fyrir dómi og dregur úr trúverðugleika hans hvað þetta mikilvæga atriði varðar. Verður framburður ákærða fyrir lögreglu lagður til grundvallar og við það miðað að ákærði hafi þar ekki hafnað því að hann kunni að hafa tekið brotaþola hálstaki.“ Frásögn konunnar stöðug Frásögn konunnar hafi verið stöðug um að maðurinn hafi tekið hana hálstaki umrætt kvöld. Styrki það trúverðugleika hennar. Samkvæmt fyrirliggjandi læknisvottorði hafi hún greint frá strax á bráðamóttöku 14. mars 2022 að maðurinn hafi tekið hana hálstaki að kvöldi 11. mars. „Þær skýringar ákærða að frásögn brotaþola megi rekja til reiði hennar vegna sambandsslita sumarið 2023 og eftirfarandi ágreinings um eignaskipti fá því ekki staðist.“ Með vísan til þessa, framburða vitna og áverkaskýrslu taldi dómurinn hafið yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hefði tekið konuna hálstaki umrætt sinn. Dómurinn taldi þá háttsemi réttilega heimfærða til ákvæðis almennra hegningarlaga um minni háttar líkamsárás. Slíkt brot fyrnist á tveimur árum og því var maðurinn sýknaður.
Heimilisofbeldi Dómsmál Mest lesið Vaktin: Þjóðin býr sig undir illviðri Veður Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Innlent Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Innlent Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Innlent Státum af klárasta barþjóni Evrópu Innlent Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Innlent Ógni þjóðaröryggi að ekkert íslenskt kaupskip sé skráð hér á landi Innlent Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Innlent Vegum lokað og varað við ferðalögum á Suðurlandi Innlent Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Innlent Fleiri fréttir Vegum lokað og varað við ferðalögum á Suðurlandi Státum af klárasta barþjóni Evrópu Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Ógni þjóðaröryggi að ekkert íslenskt kaupskip sé skráð hér á landi Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Almannavarnir í beinni og ótti um að launafólk verðleggi sig út af markaðnum Aflýsa og seinka flugferðum Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Auka viðbúnað í Grindavík vegna veðurs „Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg“ Loka Sorpu vegna veðurs Áfram í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar í Túnunum Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Bíll í ljósum logum Fjölga plássum og breyta nafni eins leikskóla Þau skipa lista Miðflokksins í Reykjanesbæ Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm Kolin hitna undir menningarhúsinu á Króknum Gert ráð fyrir að aðildarviðræður klárist á kjörtímabilinu Hafa áhyggjur af húsnæðis- og byggingamarkaði Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin „Umferðin kemur til með að hægja verulega á sér“ Gera ráð fyrir að aðildarviðræður klárist fyrir lok kjörtímabilsins Tókust á um Borgarlínuna Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Rukka ekki skólagjöld í nýjum einkaskóla í Kópavogi Hæddist að Kristrúnu: „Halló! Ég er orðinn pirripú“ Engin samtöl hafi átt sér stað um „fiskveiðikommissar“ Sjá meira