Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 15:13 Dario Amodei er forstjóri Anthropic. Getty Forstjóri gervigreindarfyrirtækisins Anthropic segist ekki geta með góðri samvisku gefið Pentagon ótakmarkaðan aðgang að tækni sinni. Í nýjum samningi sem þeim var boðinn við varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna höfðu stjórnvöld meðal annars heimild fyrir því að fylgjast með íbúum Bandaríkjanna.
Dario Amodei, forstjóri Anthropic, birti yfirlýsingu vegna samningaviðræðna fyrirtækisins við varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Þar ítrekar hann mikilvægi þess að nota gervigreind til að verja Bandaríkin og önnur lýðræðisríki og sigra einræðisandstæðinga. „Hins vegar í fáum tilvikum teljum við að gervigreind geti grafið undan lýðræðislegum gildum, frekar en að verja þau. Sum notkun er líka einfaldlega utan marka þess sem tækni nútímans getur gert á öruggan og áreiðanlegan hátt. Tvö slík tilvik hafa aldrei verið innfalin í samningum okkar við varnarmálaráðuneytið og við teljum að þau eigi ekki að vera innifalin núna,“ segir í yfirlýsingunni. Atriðin tvö sem forsvarsmenn Anthropic telja að ráðuneytið ætti ekki að nýta gervigreindina í fjöldaeftirlit íbúa Bandaríkjanna og sjálfvirk vopn knúin af gervigreind. „Fjöldaeftirlit með gervigreind felur í sér alvarlega, nýja áhættu fyrir grundvallarfrelsi okkar. Að því marki sem slíkt eftirlit er löglegt núna, er það aðeins vegna þess að lögin hafa ekki enn náð að halda í við ört vaxandi getu gervigreindar.“ Settu þeim afarkosti Í umfjöllun AP segir að Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hafi sagt forsvarsmönnum Anthropic að annaðhvort myndu þau leyfa Pentagon að nota gervigreindartæknina í það sem þau lystir eða fyrirtækið verði af samningi við ráðuneytið. Ráðuneytið hefur þegar gert samninga við Google, OpenAI (sem á ChatGPT) og xAI, í eigu Elon Musk, um notkun á tækni þeirra í nýju kerfi bandaríska hersins. Haft er eftir Sean Parnell, talsmanni Pentagon, að hann hefði engan áhuga á að nota gervigreind til að fylgjast með Bandaríkjamönnum né við gerð sjálfvirkra vopna. Amodei lýsti því einnig í yfirlýsingunni hvernig varnarmálaráðuneytið hótaði Anthropic að annaðhvort fjarlægja tækni þeirra úr kerfum sínum sem öryggisráðstöfun eða beita lögum um varnarframleiðslu svo öryggisráðstafanir fyrirtækisins yrðu felldar úr gildi. „Þessar tvær síðastnefndu hótanir eru í eðli sínu misvísandi: önnur stimplar okkur sem öryggisáhættu; hin stimplar Claude sem nauðsynlegan fyrir þjóðaröryggi,“ segir Amodei. „Engu að síður breyta þessar hótanir ekki afstöðu okkar: við getum ekki með góðri samvisku orðið við beiðni þeirra.“
Gervigreind Bandaríkin Mest lesið Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Erlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Innlent Fleiri fréttir Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Sjá meira