„Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 19. febrúar 2026 18:58 Helga Tryggvadóttir er formaður Félags íslenskra krabbameinslækna. vísir/sigurjón/getty Formaður Félags krabbameinslækna segir rannsóknir Intuens gera meiri skaða en gagn. Þær veiti falskt öryggi sem ýti undir heilsukvíða og krefjist frekari rannsókna sem geti spillt heilsu.
Intuens býður upp á svonefnda heilskoðun til að greina kvilla og sjúkdóma. Fyrirtækið hefur sótt í sig veðrið á nýjan leik eftir áskoranir undanfarin ár. Til dæmis bannaði landlæknisembættið fyrirtækinu að veita þjónustu sem heilbrigðisráðuneytið ógilti síðan í september 2024 og í kjölfarið hefur verið hægt að bóka í heilskoðun fyrir 300 þúsund krónur. Töluvert hefur farið fyrir markaðsefni frá fyrirtækinu á síðustu mánuðum þar sem ýmsir aðilar úr þjóðfélaginu hafa deilt reynslusögum Í Íslandi í dag í gær var rætt við mann sem segir að krabbamein á öðru stigi hafi fundist í kjölfar heilskoðunar en svo vildi til að dóttir hans starfar hjá fyrirtækinu. Í næstu viku verður mál Intuens gegn íslenska ríkinu og Sjúkratryggingum Íslands tekið fyrir hjá héraðsdómi. Þar vill fyrirtækið meina að ríkið hafi bakað sér skaðabótaskyldu með því að bjóða ekki út skoðunarþjónustu með réttum hætti. Óþarfa rannsóknir sem valdi skaða Helga Tryggvadóttir, formaður Félags íslenskra krabbameinslækna, segist ekki mæla með þjónustunni þrátt fyrir einstaka jákvæða sögu. „Við höfum alveg verið skýr með það að við mælum ekki með svona heilskoðunum eins og er boðið upp á hjá Intuens. Ástæðan fyrir því er raunverulega að okkur finnst þetta í raun bara vera óþarfa rannsóknir sem geta valdið meiri skaða en þær gera gagn.“ Hún segir rannsóknir Intuens geta leitt til ofgreininga. Saklausir hlutir sem koma upp á myndum geti krafist óþarfa rannsókna. „Það getur þýtt það að maður fari í fleiri rannsóknir og oftar. Það getur jafnvel verið skaðlegt hvað varðar geislun sem tengist sumum tegundum myndgreininga. Síðan getur það jafnvel komið til þess að það sé verið að framkvæma ástungur, til að ná greiningu úr litlum hnútum sem sjást á þessum myndum, sem getur þá jafnvel valdið einhverjum skaða í kjölfarið.“ Falskt öryggi sem ýti undir kvíða Skoðanirnar veiti falskt öryggi sem ýti undir heilsukvíða. Auðvelt sé að festast í vítahring þar sem farið er ítrekað í skoðun. „Þá getur þetta valdið kvíða og líka kannski ýmis óljós svör sem koma út úr þessu sem getur verið erfitt að túlka. Það er náttúrulega dýrt að fara í svona rannsókn. Það er mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði.“ Hjalti Már Þórisson, formaður Félags röntgenlækna, tekur undir með Helgu. „Þegar það er verið að skoða skimun fyrir sjúkdómum þarf að horfa í hagsmuni heildarinnar. Það hafa verið gerðar rannsóknir til að reyna sýna fram á gagnsemi svona rannsókna með segulómun en þær hafa ekki sýnt jákvæðar niðurstöður ennþá. Það er ekkert útilokað að það gerist í framtíðinni. Það er alveg mögulegt að svona rannsóknir verði gagnreyndar síðar meir. Þær eru það ekki núna og því mælum við ekki með svona rannsóknum.“
Heilbrigðismál Heilskimanir Mest lesið Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Erlent Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Lítið breyst á fimmtán árum Innlent Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Erlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Fleiri fréttir Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Sjá meira