„Ef við viljum fá Haaland verðum við að fá Messi aftur“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. febrúar 2026 09:00 Marc Ciria lofar því að fá Lionel Messi aftur til Barcelona ef hann verður kjörinn forseti félagsins. getty / samsett Kolin eru að hitna hjá forsetaframbjóðendum spænska félagsins Barcelona og Lionel Messi er grimmt notaður í áróður.
Sitjandi forsetinn Joan Laporta sækist eftir endurkjöri en Marc Ciria og Víctor Font bjóða sig fram á móti honum. Allir þrír opnuðu kosningamiðstöðvar í gær og Marc Ciria setti upp risastórt veggspjald í Barcelona, með mynd af Lionel Messi, þar sem stóð: „Hlakka til að sjá ykkur aftur.“ „Hlakka til að sjá ykkur aftur“ stendur á veggspjaldi við kosningamiðstöð Marc Ciria.la vanguardia Messi fór frá Barcelona árið 2021 vegna fjárhagslegra örðugleika félagsins en Joan Laporta settist aftur í forsetastólinn síðar sama ár. Hann bauð sig einnig fram með sama slagorði: „Hlakka til að sjá ykkur aftur“ en það var vísun í fyrri forsetatíð hans frá 2003-10 þegar Barcelona náði mögnuðum árangri. Laporta vann forsetakosningarnar 2021 síðan í rauninni með því að lofa að hann myndi finna leið til að framlengja samning Messi. „Við leysum það með góðri grillveislu. Samningamál eru mitt sérvið“ sagði Laporta kokhraustur á sínum tíma, en það tókst ekki. Síðan þá hefur Laporta ítrekað talað um að fá hann aftur til félagsins, en gert það af virðingu við núverandi félag hans Inter Miami. Joan Laporta, forseti Barcelona.EPA-EFE/Alejandro Garcia Og nú eru bæði Marc Ciria og Víctor Font að bjóða sig fram undir svipuðum formerkjum. Font hefur lofað því að hann sé með plan til að fá Messi aftur en hann leggur reyndar líka áherslu á að hann sé heimamaður og sé í slagtogi með tveimur öðrum heimamönnum í Barcelona sem vilja losa lúxusköttinn Deco úr stóli íþróttastjóra. Ciria hefur keyrt sína kosningabaráttu mikið á Messi, eins og veggmyndin hér að ofan ber merki um. Þegar kosningamiðstöð hans var opnuð í Barcelona í gær ræddi hann við dagblaðið Cadena SER og sagði: „Á næstu dögum munum við kynna áætlanir sem við höfum verið að vinna að í mörg ár, til að endurheimta Messi. Við vitum að framtíð Messi er hjá Barcelona. Hann vill græða sárin og gerast samstarfsaðili okkar aftur“ sagði Ciria og útskýrði að með komu Messi myndu skapast að minnsta kosti 175 milljónir evra í tekjum fyrir félagið. „Ef við viljum fá Haaland verðum við að fá Messi aftur sem samstarfsaðila“ sagði Ciria og gaf þar í skyn að Messi myndi ekki endilega snúa aftur sem leikmaður, enda verður hann 39 ára síðar á árinu. La Vanguardia, stærsta dagblað Katalóníu, fjallaði ítarlega um frambjóðendurna. Forsetakosningarnar fara fram þann 15. mars næstkomandi.
Spænski boltinn FC Barcelona Mest lesið Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti „Það var ekkert í heiminum að fara breytast“ Sport „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti Real Madrid goðsögn fallin frá Fótbolti „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ Handbolti Fleiri fréttir „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Isak byrjar hjá Liverpool en Salah er aftur á bekknum Hættur að þjálfa Messi fjórum mánuðum eftir titilinn Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkar nældu í þrjú stig Thelma Karen í byrjunarliðinu „Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga“ Iraola yfirgefur Bournemouth Vill sjá styttri leiki með engum spjöldum og fleiri mörkum „Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Sjá meira