Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 9. febrúar 2026 12:18 Selma Klara Gunnarsdóttir, hagsmunafulltrúi NFHB. vísir/vilhelm/aðsend Nemendur og akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst saka stjórnendur skólans um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Það sé aðför gegn tjáningarfrelsi nemenda og fari gegn siðareglum. Stjórnarmaður í FAB segir rektor vera búinn að „missa klefann“.
Stjórn Háskólans á Bifröst sendi starfsfólki og nemendum skólans bréf í morgun þar sem harmað er að mál þriggja lektora fyrir siðanefnd skólans hafi ratað í fjölmiðla. Stjórnin fundaði núna fyrir hádegi um sáttarferli við starfsmennina sem fer nú í hönd. Málið á rætur sínar að rekja til þess að rektor skólans vísaði því til siðanefndar að kanna hvort þrír starfsmenn skólans væru réttilega skráðir höfundar tveggja fræðigreina. Rektor hefur sagt gruninn hafa komið upp vegna nafnlausrar ábendingar en gervigreindarforritið Claude var notað til að kanna réttmæti höfundarstöðu. Málsaðilar hafa sent stjórn Bifrastar bréf þar sem þess er krafist að nafnleynd í málinu verði aflétt, annars verði skoðað að leita til dómstóla eða leggja málið fyrir Umboðsmann Alþingis. Vísað er til stjórnsýslulaga þessu til stuðnings. „Með vísan til lögvarinna réttinda okkar sem málsaðila, að Háskólinn á Bifröst veiti okkur tafarlausan og óskoraðan aðgang að öllum gögnum er varða upphaf og kveikju þess máls,“ segir í bréfinu. Þá leitaðist rektor eftir því á sínum tíma að siðanefnd myndi ekki láta málsaðila vita að mál þeirra væri til skoðunar sem fer gegn meginreglum stjórnsýsluréttar að mati Félags akademískra starfsmanna Bifrastar eða FAB. Lektorarnir þrír voru hreinsaðir af öllum sökum fyrir siðanefnd á föstudaginn. Nemendur óöryggir Síðan að málið kom upp hafa þó nokkrir akademískir starfsmenn skólans og nemendur stigið fram og fordæmt vinnubrögð rektors. Í yfirlýsingu frá nemendafélagi skólans segir að stjórnendur hafi beitt nemendur þrýstingi í þeim tilgangi að tryggja rektor stuðning. Selma Klara Gunnarsdóttir, hagsmunafulltrúi nemendafélagsins, fordæmir vinnubrögðin. „Þetta eru nokkrir nemendur sem hafa verið beittir þrýstingi og þetta er bara þess eðlis að nemendur eru beðnir um að endurskoða afstöðu sína og ekki taka neina afstöðu í þessu máli. Þetta er mjög óeðlilegt og ólíðandi að þetta sé gert,“ segir Selma í samtali við fréttastofu. Um aðför gegn tjáningarfrelsinu sé að ræða að hennar mati. Hún segir málið hafa mikil áhrif á nemendur. „Mikið óöryggi og þeim finnst bara brotið á sínu trausti. Nemendur eiga að geta treyst stjórnendum skólans. Það er ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum og upplifa að það sé verið að misnota traust þeirra. Nemendur skólans og starfsfólk á að geta tjáð sig óhindrað. Þau eiga að geta sett fram sínar skoðanir og gagnrýni. Það kemur allt á óvart við þetta. Það er allt óeðlilegt við þetta. Okkur er verulega brugðið yfir þessu.“ Stjórnendur að missa klefann Sigrún Lilja Einarsdóttir, stjórnarmaður hjá Félagi akademískra starfsmanna Bifrastar eða FAB, segir bréf stjórnar í morgun gera lítið úr málinu. FAB muni fara með málið fyrir dómstóla eða umboðsmann alþingis ef nafnleynd þess sem sendi upphaflegu ábendinguna verði ekki aflétt. „Það liggur fyrir að það verði skoðað alvarlega að fara dómstólaleiðina eða setja málið fyrir Umboðsmann Alþingis. Við auðvitað bindum vonir við það að stjórn Háskólans á Bifröst axli sína ábyrgð og sjái sóma sinn í því að þessu verði fylgt eftir og við hvetjum þau til þess. Þessu máli er því miður hvergi nærri lokið.“ Hún segir vinnubrögð stjórnenda gagnvart nemendum brjóta gegn siðareglum skólans. „Nemendur eru að rísa upp og ég myndi segja að þegar stjórnendur eru búnir að missa þann klefa þá er tímabært að finna sér eitthvað annað að gera.“
Deilur í Háskólanum á Bifröst Skóla- og menntamál Háskólar Borgarbyggð Höfundar- og hugverkaréttur Gervigreind Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Sjá meira