Þetta eru drottningar tískuvikunnar í París Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 29. janúar 2026 09:41 Teyana Taylor er drottning tískuvikunnar í París. Valentina Frugiuele/Getty Images París iðar af hátísku sem aldrei fyrr og súperstjörnur spóka sig um götur borgarinnar. Tískuvikan er farin á fullt og orkan er engri lík.
Öll heitustu og virtustu tískuhús heims leggja allt í sýningar sínar og vonast til þess að koma með eitthvað splunkunýtt og brakandi ferskt inn í síbreytilegan heim klæðaburðar. Nokkrar stjörnur hafa vakið meiri athygli en aðrar fyrir klæðaburð og einstakan stíl. Hér eru þær: Teyana Taylor Leikkonan, dansarinn og hin nýlega Óskarstilnefnda Teyana Taylor er heitasta stjarnan um þessar mundir og yfirlýst tískudrottning Parísar. Teyana Taylor ekkert eðlilega glæsileg á sýningu Schiaparelli.Valentina Frugiuele/Getty Images Hún rokkar Schiaparelli betur en flestir en franska tískuhúsið hefur aldrei verið vinsælla, frumlegra eða heitara. View this post on Instagram A post shared by Schiaparelli (@schiaparelli) Jodie Smith Breska leikkonan og fyrirsætan Jodie Smith er önnur listagyðja fyrir Schiaparelli og var elegansinn uppmálaður á sýningu tískuhússins í fyrradag. View this post on Instagram A post shared by Schiaparelli (@schiaparelli) Demi More Þessi leikkona sem átti stórkostlega endurkomu árið 2024 fyrir hlutverk sitt í The Substance er orðin fastagestur á allar heitustu sýningarnar í dag. Hún og Schiaparelli hafa núna sagt og sýnt í verki að hlébarðamynstur taki yfir 2026. View this post on Instagram A post shared by Schiaparelli (@schiaparelli) Dua Lipa Þær gerast ekki mikið flottari en poppprinsessan Dua Lipa sem er alltaf óaðfinnanlega klædd og tekst sömuleiðis alltaf að vera skemmtileg í fatavali. Hún skein hvað skærast á Chanel sýningunni í fyrradag í truflað flottri grúví pilsadragt. View this post on Instagram A post shared by Vogue (@voguemagazine) Kate Moss Tískudrottning heimsins Kate Moss slær ekki slöku við og heldur áfram að bera af í klæðaburði, áratugi í röð. Hún var stílhrein og gríðarlega smart á sýningu YSL í París. View this post on Instagram A post shared by Vogue (@voguemagazine) Nicole Kidman Ástralska undrið, leikkonan ástsæla og nýfráskilda tískugyðjan Nicole Kidman hefur fyrir löngu sannað að hún og hátíska er kombó sem segir sex. Henni tekst alltaf að vera klassísk en ofur kúl á sama tíma og það sást vel á sýningu Chanel. View this post on Instagram A post shared by Vogue (@voguemagazine)
Tíska og hönnun Frakkland Hollywood Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Fleiri fréttir Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Synir Britney gengu tískupallinn í París „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Hannaði frægasta brúðarkjól ársins Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Dóttir Obama í íslenskri hönnun Heitustu tískutrendin í sumar „Það má herma“ Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM „Ég sef í gallabuxum“ Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni „Mun aldrei geta þakkað henni nógu mikið fyrir“ Sjá meira