„Ísland í betra formi en við höfum sýnt“ Valur Páll Eiríksson skrifar 22. janúar 2026 18:03 Dagur Sigurðsson, þjálfari króatíska landsliðsins í handbolta. Vísir/Vilhelm Dagur Sigurðsson býst við strembnum leik er hans menn í króatíska landsliðinu mæta Íslandi í fyrsta leik í milliriðli á EM á morgun. Sterka menn vanti í bæði lið.
Ísland missti út mikilvægan leikmann í Elvari Erni Jónssyni sem braut bein í hönd í sigri Íslands á Ungverjalandi í fyrrakvöld. Dagur segir að áhugavert verði að sjá hvernig íslenska liðið leysi þá stöðu. „Það er smá erfitt að sjá áhrifin sem það hefur að missa Elvar. Hvernig þeir eiga eftir að spila úr því. Þetta er vissulega högg fyrir þá. En við erum í smá svipaðri stöðu, við misstum línumanninn okkar sem var sá leikmaður sem við leituðum til þegar það virkaði ekki allt í sókninni,“ segir Dagur sem á von á mikilli hörku. „Við erum því líka breyttir. Ef eitthvað er, þá er íslenska liðið í betra formi en við höfum sýnt. Svo er þetta bara ein orusta. Við vitum að bæði lið hafa mikla réttlætiskennd. Þetta eru stríðsmenn. Þetta verður einhver orusta. Vonandi eru allir klárir og betra liðið vinnur,“ segir Dagur. Fátt eigi þá að koma á óvart í uppstillingu liðanna og spilamennsku. Króatía vann sex marka sigur á Íslandi á HM fyrir ári síðan sem skaut Króötum áfram í 8-liða úrslit á meðan Ísland sat eftir í milliriðlinum. „Ég held það sé ágætlega vitað hvað bæði lið spila. Það er ekkert endilega margt sem kemur á óvart. Kannski eru smá leynivopn ef menn lenda í vandræðum er eitthvað dregið fram úr erminni en líklega er ekkert nýtt undir sólinni,“ segir Dagur. Fleira kemur fram í viðtalinu sem má sjá í spilaranum.
Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Íslenski boltinn „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira