Þóttist vera borgarstarfsmaður og sveik út síma og verkfæri Kjartan Kjartansson skrifar 12. janúar 2026 11:52 Maðurinn sveik meðal annars tvo Samsung Galaxy S22-snjallsíma út úr verslun með því að þykjast vera starfsmaður Reykjavíkurborgar. Þá blekkti hann starfsmenn annarra verslana til að fá sér fjóra Iphone 13 snjallsíma. Vísir/EPA Karlmaður náði að svíkja út síma og verkfæri fyrir hundruð þúsunda króna úr verslunum með því að villa á sér heimildir sem starfsmaður Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar. Hann hlaut fimm mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir skjalafals og fjársvik.
Svikin framdi maðurinn með því að látast vera starfsmaður sveitarfélaganna og framvísa fölsuðum innkaupabeiðnum frá þeim tvo daga í ágúst árið 2022. Á þennan hátt sveik hann sex snjallsíma með söluverðmæti sem nam rúmum 1,2 milljónum króna samtals út úr verslunum. Símarnir voru ranglega skuldfærðir á viðskiptareikning Reykjavíkurborgar en verslanirnar fengu þá aldrei greidda. Þá blekkti maðurinn starfsmenn verslana til þess að afhenda sér ýmis verkfæri og skópar sem saman voru metin á rúma milljón króna. Verkfærin voru skuldfærð á Reykjavíkurborg en þrjú Scarpa-skópör á Kópavogsbæ. Maðurinn var einnig ákærður fyrir smáþjófnað, hraðakstur og ölvunar- og vímuefnaakstur. Sviptur réttindum ævilangt fyrir tæpum áratug Upphaflega lýsti maðurinn sakleysi sínu af skjalafalsinu og fjársvikunum en játaði umferðarlagabrotin og smáþjófnaðinn. Síðar venti hann kvæði sínu í kross og játaði öll brotin. Játning var metin honum til málsbóta en á hinn bóginn var litið til þess að hann hefði verið sakfelldur fyrir ítrekuð skjalafalsbrot og ítrekaðan akstur undir áhrifum. Fram kemur í dómnum að hann hafi þrisvar gengist undir lögreglustjórasátt vegna vímuefnaaksturs frá árinu 2015. Þá hafi hann verið sviptur ökuréttindum ævilangt og dæmdur í þrjátíu daga fangelsi vegna þess árið 2016. Maðurinn var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar hans var áréttuð. Hann þarf einnig að greiða einu fyrirtækjanna sem hann svindlaði á rúmar 323 þúsund krónur auk rúmlega 800 þúsund króna í málskostnað.
Dómsmál Reykjavík Kópavogur Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Sjá meira