Mané lagði upp tvö og Senegal fyrsta liðið í átta liða úrslit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2026 18:10 Sadio Mané var allt í öllu þegar Senegal komst áfram í útsláttarkeppni Afríkumótsins í kvöld. Getty/Visionhaus Senegal varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Afríkukeppninnar í ár.
Senegal vann 3-1 sigur á Súdan í fyrsta leik sextán liða úrslitanna. Pape Gueye, leikmaður Villarreal, og Ibrahim Mbaye, efnilegur leikmaður Paris Saint Germain, skoruðu mörkin fyrir Senegal í sigrinum. Súdanar komust reyndar í 1-0 eftir aðeins sex mínútna leik en Senegalar voru komnir yfir fyrir hálfleik. Pape Gueye skoraði bæði mörk Senegal í fyrri hálfleik, það fyrra á 29. mínútu eftir undirbúning Sadio Mané en það seinna í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir sendingu frá Nicolas Jackson. Mané lagði síðan upp þriðja markið fyrir Ibrahim Mbaye á 77. mínútu. Aamir Abdallah hafði komið Súdan óvænt yfir með frábæru marki í upphafi leiks. Sadio Mané var aðalmaðurinn að baki viðsnúningi Senegal. Auk tveggja stoðsendinga skapaði hann fimm færi, vann sex af 11 einvígjum sínum, endurheimti boltann sjö sinnum og átti nítján heppnaðar sendingar á síðasta þriðjungi vallarins, en hann var fremstur sinna manna í öllum þessum tölfræðiþáttum. Senegal mætir annaðhvort Malí eða Túnis í átta liða úrslitum en þau mætast seinna í kvöld.
Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Sjá meira