Sjóðheitur Sigurður Bjartur með sjö mörk í síðustu fimm leikjum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. ágúst 2025 11:31 Aðeins tveir leikmenn hafa skorað fleiri mörk en Sigurður Bjartur Hallsson í Bestu deild karla í sumar. vísir/anton Eftir að hafa daðrað við fallbaráttu er FH komið í baráttu um að vera í efri helmingi Bestu deildar karla eftir gott gengi í síðustu leikjum. Það er ekki síst framherjanum Sigurði Bjarti Hallssyni að þakka en hann hefur verið óstöðvandi að undanförnu.
FH gerði góða ferð í Kópavoginn í gær og vann 4-5 sigur á Íslandsmeisturum Breiðabliks í miklum markaleik. Þetta var fyrsti sigur FH-inga á gervigrasi í sumar og þeir eru nú komnir upp í 6. sæti deildarinnar með 26 stig. Sigurður Bjartur skoraði eitt marka FH á Kópavogsvelli í gær. Hann hefur nú skorað í fimm leikjum í röð, alls sjö mörk. Sigurður Bjartur er kominn með níu mörk í sumar og er þriðji markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar. Aðeins Valsmaðurinn Patrick Pedersen (18) og KR-ingurinn Eiður Gauti Sæbjörnsson (10) hafa skorað meira. FH hefur náð í tíu stig í síðustu fimm leikjum. Eina tapið kom gegn toppliði Vals í leik þar sem FH þótti spila vel. Sigurður Bjartur skoraði átta mörk í Bestu deildinni í fyrra og er nú búinn að toppa þann árangur. Sigurður Bjartur var næstmarkahæstur í næstefstu deild 2021 þegar hann skoraði sautján mörk fyrir Grindavík. Eftir það fór hann til KR þar sem hann lék í tvö ár. Sigurður Bjartur gekk svo í raðir FH í fyrra og hefur skorað sautján mörk í 46 deildarleikjum fyrir liðið. Næsti leikur FH er gegn ÍBV í Kaplakrika á sunnudaginn kemur.
Besta deild karla FH Tengdar fréttir Fyrsti sigurinn á gervigrasi í 357 daga FH vann í gær 5-4 sigur á Breiðabliki í hreint ótrúlegum fótboltaleik. Um er að ræða fyrsta sigur FH á gervigrasi í tæpt ár. 18. ágúst 2025 10:30 „Maður þurfti kvíðalyf síðustu mínúturnar“ „Við erum sjálfum okkur verstir á köflum, maður þurfti kvíðalyf síðustu mínúturnar. Algjör óþarfi að hleypa leiknum upp í þetta, en fyrirfram hefði ég alveg tekið því að skora fimm á móti Íslandsmeisturunum“ sagði Böðvar Böðvarsson, fyrirliði FH, eftir ótrúlegan 4-5 sigur á Kópavogsvelli. Hann segir FH vera að nálgast stöðugleikann sem liðið hefur skort. 17. ágúst 2025 21:46 Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Sjá meira
Fyrsti sigurinn á gervigrasi í 357 daga FH vann í gær 5-4 sigur á Breiðabliki í hreint ótrúlegum fótboltaleik. Um er að ræða fyrsta sigur FH á gervigrasi í tæpt ár. 18. ágúst 2025 10:30
„Maður þurfti kvíðalyf síðustu mínúturnar“ „Við erum sjálfum okkur verstir á köflum, maður þurfti kvíðalyf síðustu mínúturnar. Algjör óþarfi að hleypa leiknum upp í þetta, en fyrirfram hefði ég alveg tekið því að skora fimm á móti Íslandsmeisturunum“ sagði Böðvar Böðvarsson, fyrirliði FH, eftir ótrúlegan 4-5 sigur á Kópavogsvelli. Hann segir FH vera að nálgast stöðugleikann sem liðið hefur skort. 17. ágúst 2025 21:46