Innlent

Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá

Jón Þór Stefánsson skrifar
Gísli Gunnarsson, Guðrún Karls Helgudóttir og Kristján Björnsson eru biskupar Íslands.
Gísli Gunnarsson, Guðrún Karls Helgudóttir og Kristján Björnsson eru biskupar Íslands.

„Sama hve máttlaus við kunnum að upplifa okkur gagnvart atburðum utan landsteina Íslands megum við aldrei sætta okkur við að ofbeldi, hvar sem er í heiminum, sé á einhvern hátt ásættanlegt eða eðlilegur hluti af tilveru okkar. Slík uppgjöf fer gegn öllu því sem kristin trú stendur fyrir,“ segir í yfirlýsingu frá Biskupafundi.

Þar taka Biskupar Þjóðkirkjunnar, þau Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands, Kristján Björnsson vígslubiskup í Skálholti, og Gísli Gunnarsson, vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal, undir yfirlýsingu forsætisráðherra og annarra þjóðarleiðtoga um að koma þurfi í veg fyrir frekari hörmungar á Gasa.

„Við skorum á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að stíga fast til jarðar þegar kemur að stöðunni á Gaza. Hún er löngu komin út yfir öll mannúðleg mörk.“

Í yfirlýsingunni segir að kristnar kirkjur geti ekki staðið hjá og þagað yfir ástandinu fyrir botni Miðjarðarhafs.

„Allar manneskjur eru skapaðar í Guðs mynd og hver einasta manneskja er jafn dýrmæt. Frá 7. október 2023 hafa tugir þúsunda látið lífið í þýðingarlausum stríðsátökum. Neyðaraðstoð hefur verið haldið frá íbúum Gaza síðan í janúar. Manngerð hungursneyð geisar og saklaust fólk lætur lífið hvern dag. Kristnar kirkjur geta ekki staðið hjá og þagað og það gera biskupar Þjóðkirkjunnar ekki heldur,“ segir í yfirlýsingunni.

„Á tímum sem þessum upplifum við okkur gjarnan áhrifalaus en það sem við getum öll gert er að láta náunga okkar varða hver sem hann er og hvar sem hann er í heiminum og þegja ekki þegar okkur er misboðið. Við getum beðið fyrir sáttargjörð og friði. Við getum haft áhrif með því að styðja hjálparstarf með einum eða öðrum hætti. Við getum minnt á, hvar sem við erum stödd hverju sinni, að ofbeldið sem geisar nú fyrir botni Miðjarðarhafs getur aldrei leitt þessi átakamál til lykta– heldur er ofbeldið sjálft vandamálið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×