Áskorun

Ó­hamingju­samt hjóna­band: Að hanga saman fyrir börnin

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Að vera í óhamingjusömu hjónabandi ,,fyrir" börnin eru aldrei rök sem standast skoðun. Því rannsóknir hafa sýnt að það besta sem foreldrar geta gert fyrir börnin sín er að rækta sína eigin hamingju.
Að vera í óhamingjusömu hjónabandi ,,fyrir" börnin eru aldrei rök sem standast skoðun. Því rannsóknir hafa sýnt að það besta sem foreldrar geta gert fyrir börnin sín er að rækta sína eigin hamingju. Vísir/Getty

Við þekkjum öll þessar sögur: Að foreldrar haldi hjónabandi gangandi „fyrir“ börnin. Óhamingjan samt einkennandi, jafnvel búin að vara í mörg ár.

Skýringin: Jú, að halda fjölskyldunni saman fyrir börnin.

En óhamingja er jafn smitandi og hamingja og meðal þeirra atriða sem hafa mjög neikvæð áhrif á börn þegar hjónaband foreldra eru ekki góð, eru til dæmis:

  • Andrúmsloftið á heimilinu eru tilfinningaþrungið og oft neikvætt
  • Fyrirmynd barnanna að hjónaböndum er neikvæð, til dæmis varðandi samskipti, virðingu almennt, samneyti, samkennd, verkaskiptingu, samveru og svo framvegis
  • Neikvæð áhrif á andlega líðan barna (og annarra fjölskyldumeðlima)

Rannsóknir hafa hins vegar sýnt að eitt það besta sem fólk gerir fyrir börnin sín er að vera hamingjusamt.

Sem í raun þýðir að það að vera í óhamingjusömu hjónabandi „fyrir“ börnin eru rök sem ekki standast skoðun.

Á vefsíðunni Anna Freud er að finna heilmikinn fróðleik og góð ráð um það, hvernig fólk getur líka unnið að því statt og stöðugt að vera hamingjusöm sem foreldrar.

Sem í raun snýst fyrst og fremst um sjálfsrækt foreldra; að við sem foreldrar séum statt og stöðugt að því að rækta okkur sjálf sem hamingjusama einstaklinga, meðal annars til þess að hafa langvarandi góð áhrif á börnin okkar.

Eitt af því sem foreldrum er þá kennt, er að læra að setja sjálfan sig í fyrsta sæti með það fyrir augum að jákvæðu áhrifin af eigin hamingju eru svo margþætt og smitandi. 

Sem dæmi um leiðir til sjálfsræktar foreldra er bent á:

  • Að leyfa sjálfum sér að taka það pláss í dagskránni að huga að sjálfum sér fyrst og fremst (áhugamálum, hvíld, félagslíf og svo framvegis)
  • Að huga að hreyfingu, svefn og svo framvegis
  • Að læra að segja „Nei“
  • Að virkja sig í því sem maður hefur ástríðu fyrir
  • Og margt fleira.

En hvernig er það hægt, ef viðhorf foreldris er það að réttast sé að vera í óhamingjusömu hjónabandi „fyrir“ börnin?

Gott fyrsta skref er að ræða við maka sinn um stöðuna, jafnvel að leita til fagaðila eins og fjölskyldu- og pararáðgjafa. 

Mögulega er staðan jafnvel sú að skilnaður er óumflýjanlegur. 

Hver svo sem niðurstaðan verður, er að minnsta kosti gott fyrir hvaða foreldri sem er í óhamingjusömu hjónabandi, að réttlæta ekki óbreytta stöðu sem ákvörðun „fyrir" börnin. 

Heldur frekar að hugsa: 

Hvaða skref ætti ég að taka, sem væri besta fyrsta skrefið í því markmiði að tryggja að börnin mín alist ekki upp við óhamingjusamt hjónaband foreldra sinna?


Tengdar fréttir

„Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“

„Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn. Ég er bara svona. Ég er svona vegna þess að það er meitlað í genin mín“ segir Ásmundur Gunnarsson, sérfræðingur í klínískri sálfræði hjá Kvíðamistöðinni vera dæmi um setningar sem félagskvíðinn segir við okkur.

Að skilja og jafna sig á tilfinningalegu framhjáhaldi

Tilfinningalegt framhjáhald er tegund af framhjáhaldi sem meira er fjallað um eftir að samfélagsmiðlar og spjallforrit komu til sögunnar.  Enda erum sítengd og getum falið „allt“ í símanum okkar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×