Fyrsta alþjóðlega barokkhátíðin í Reykjavík Jón Ísak Ragnarsson skrifar 20. mars 2024 20:30 Reykjavík Early Music Festival er nafn nýrrar tónlistarhátíðar sem haldin verður í dymbilvikunni. Aðsend Reykjavík Early Music Festival er nafnið á nýrri tónlistarhátíð sem haldin verður í Hörpu í næstu viku dagana 26.-28. mars. Fram munu koma íslenskir og erlendir flytjendur sem sérhæfa sig í upprunaflutningi barokktónlistar. Meðal þeirra sem koma fram er fiðlustjarnan Rachel Podger, sem heldur einnig meistaranámskeið fyrir tónlistarnemendur.
Fjórir tónlistarhópar munu koma fram á hátíðinni ásamt nokkrum einleikurum og söngvurum. Þetta eru íslenskir og erlendir tónlistarmenn í bland, sem allir eru miklir sérfræðingar í barokktónlist. Meðal erlendra flytjenda er pólskur kammerhópur, breska súperstjarnan Rachel Podger, og franski sellóleikarinn Vladimir Waltham. Meðal íslenskra flytjenda eru Herdís Anna Jónasdóttir og fiðluleikarinn Elfa Rún Kristinsdóttir. Elfa Rún er stofnandi hátíðarinnar og listrænn stjórnandi. Hún er jafnframt einn stofnanda barokkbandsins Brákar sem kemur fram á hátíðinni. Hún hefur verið búsett í Þýskalandi í mörg ár þar sem hún er sjálfstætt starfandi fiðluleikari. Í Þýskalandi vann hún til verðlauna í Bach-keppni í árdaga ferilsins. Haldnir verða fernir kvöldtónleikar með hópunum Arte dei Suanatori, Barokkbandinu Brák, Amaconsort og kammerhópnum Consortico. Þá verða einnig haldnir hádegistónleikar án aðgangseyris á hátíðinni. Finna má nánari upplýsingar á heimasíðu hátíðarinnar.
Tónlist Harpa Reykjavík Mest lesið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira