Fótbolti

Tap hjá U17 í undan­keppni EM

Smári Jökull Jónsson skrifar
U17-ára landsliðið tapaði gegn Portúgal í dag.
U17-ára landsliðið tapaði gegn Portúgal í dag. Heimasíða KSÍ

Íslenska stúlknalandsliðið skipað leikmönnum sautján ára og yngri tapaði í dag 1-0 fyrir Portúgal í leik liðanna í undankeppni Evrópumótsins.

Um er að ræða seinni umferð undankeppninnar en auk Íslands og Portúgal eru Finnland og Kósóvó í þessum riðli. Sigurvegari riðilsins fer áfram í lokakeppni Evrópumóts U17-ára landsliða en mótið fer fram í Svíþjóð í maí.

Eina mark leiksins kom í fyrri hálfleik og voru það Portúgalir sem gerðu það. Markið kom á 39. mínútu eftir að fyrirgjöf frá hægri rataði beint fyrir framan fætur framherjans Melanie Florentinu sem skoraði auðveldlega.

Íslenska liðinu tókst ekki að jafna metin í síðari hálfleiknum og verða því að sætta sig við tap í fyrsta leik undankeppninnar. Ísland leikur næst gegn Finnum á laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×