Fótbolti

Hófu titilvörnina á öruggum sigri

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Pape Gueye fagnar eftir að hafa komið Senegal yfir gegn Gambíu.
Pape Gueye fagnar eftir að hafa komið Senegal yfir gegn Gambíu. getty/MB Media

Senegal vann 3-0 sigur á Gambíu í fyrsta leik sínum í C-riðli Afríkumótsins í fótbolta karla.

Senegalar urðu Afríkumeistarar í fyrsta sinn fyrir tveimur árum og eiga því titil að verja á mótinu í ár sem fer fram á Fílabeinsströndinni. Titilvörnin hófst vel en senegalska liðið bar sigurorð af því gambíska í dag.

Senegal byrjaði leikinn af krafti og strax á 4. mínútu kom Pape Gueye, leikmaður Marseille, liðinu yfir eftir sendingu frá Sadio Mané, fyrirliða og skærustu stjörnu senegalska liðsins.

Í uppbótartíma fyrri hálfleiks fékk Ebou Adams, miðjumaður Gambíu, beint rautt spjald og liðið var því manni færri allan seinni hálfleikinn.

Senegalar voru fljótir að nýta sér liðsmuninn því á 52. mínútu skoraði Lamine Camara annað mark liðsins. 

Hann var aftur á ferðinni fjórum mínútum fyrir leikslok þegar hann skoraði annað mark sitt og þriðja mark Senegals. Camara er tvítugur miðjumaður Metz í Frakklandi. 

Seinna í dag mætir Kamerún Gambíu í hinum leiknum í C-riðli. Næsti leikur Senegala er gegn Kamerúnum á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×