Innlent

Fag­fé­lögin flagga palestínska fánanum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Flaggað við skrifstofu fagfélaganna á Stórhöfða.
Flaggað við skrifstofu fagfélaganna á Stórhöfða. Aðsend

Fagfélögin fordæma yfirstandandi árás Ísrael á Gasa og skora á íslensk stjórnvöld að leita allra leiða til að þrýsta á að endir verði bundinn á hörmungarnar. Þetta kemur fram sameiginlegri yfirlýsingu fagfélaganna en þau samanstanda af MATVÍS, RSÍ, VM og Byggiðn.

„Hernaðaraðgerðirnar hafa kostað um 30 þúsund mannslíf. Ljóst er að liðlega helmingur fallinna eru börn. Ísraelsmenn hafa með framferði sínu virt alþjóðalög að vettugi og engu skeytt um afleiðingar árása sinna. Flestir óbreyttir borgarar sem ekki hafa fallið hafa verið hraktir á flótta eða heimili þeirra eyðilögð,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá er þess minnst í yfirlýsingunni að nú eru hundrað dagar frá því að árásir Ísraela stigmögnuðust þann 7. október eftir árásir Hamas í Ísrael.

„Fagfélögin hafa í dag ákveðið að sýna Palestínumönnum samstöðu með því að flagga palestínska fánanum. Hann var dreginn að húni á Stórhöfða 29-31 á hádegi í dag. Með þessari táknrænu aðgerð vilja félögin sýna almenningi í Palestínu stuðning,“ segir í yfirlýsingunni en hún hefur verið birt á heimasíðu allra félaganna.

ASÍ og BSRB flagga líka

Í yfirlýsingu á vef ASÍ segir að Alþýðusambandið og fleiri heildarsamtök innan verkalýðshreyfingarinnar hafi árum saman bent á það grófa misrétti sem verkafólk og almenningur allur í Palestínu býr við. Auk þess hafa þessi sambönd sent frá sér fjölda ályktana í gegnum tíðina gegn stríðsrekstri Ísraela á hendur íbúa Palestínu.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×