Ráðin framkvæmdastjóri Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar Árni Sæberg skrifar 8. janúar 2024 08:09 Ingibjörg Gréta Gísladóttir. Ingibjörg Gréta Gísladóttir hefur verið verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Hún hefur þegar hafið störf.
Í fréttatilkynningu um ráðninguna segir að Ingibjörg Gréta hafi yfirgripsmikla reynslu af störfum sem snúa að rekstri og stefnumótun ásamt viðburða- og verkefnastjórnun. Hún sé með MS gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst með áherslu á nýsköpun og frumkvöðlafræði auk þess að vera með BFA í leiklist frá Listaháskólanum (Leiklistarskóla Íslands). Hún hafi áratuga reynslu af viðburða- og verkefnastjórnun, hafi stýrt sýningum, hátíðum og viðburðum hérlendis sem erlendis auk almannatengsla og markaðsmála þeim tengdum. „Eftir heildstætt mat var Ingibjörg Gréta valin til að gegna starfi framkvæmdastjóra Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar og erum við mjög ánægð með að fá hana til liðs við okkur. Hennar fyrsta verk verður að halda utan um Kvikmyndaverðlaun Eddunnar sem er nú í fullum undirbúningi,“ er haft eftir segir Antoni Mána Svanssyni, formanni stjórnar ÍKSA. „Það er mér mikill heiður að fá að taka þátt í verkefnum Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, vinna að Eddunni og hugðarefnum meðlima ÍKSA og tek ég auðmjúk við keflinu af Auði Elísabetu sem hefur unnið mjög gott starf. Ég vona að mér beri gæfa til að fylgja hennar góða starfi eftir,“ er haft eftir Ingibjörgu Grétu.
Bíó og sjónvarp Vistaskipti Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… London? Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Gloria Steinem er látin Lífið Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira