Fótbolti

Rekinn nokkrum vikum eftir að ráðist var á hann

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eins og sjá má var Fabio Grosso illa farinn eftir að stuðningsmenn Marseille réðust á liðsrútu Lyon. Sauma þurfti þrettán spor í andlit hans vegna áverkanna sem hann varð fyrir í árásinni.
Eins og sjá má var Fabio Grosso illa farinn eftir að stuðningsmenn Marseille réðust á liðsrútu Lyon. Sauma þurfti þrettán spor í andlit hans vegna áverkanna sem hann varð fyrir í árásinni.

Fabio Grosso hefur verið sagt upp störfum sem knattspyrnustjóra Lyon í Frakklandi. Hann hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu.

Grosso var ráðinn stjóri Lyon um miðjan september og stýrði liðinu í aðeins sjö leikjum. Hann skilur við Lyon í fallsæti, fimm stigum frá öruggu sæti.

Grosso varð fyrir alvarlegum meiðslum þegar stuðningsmenn Marseille réðust á liðsrútu Lyon í október. Hann fékk glerbrot í andlitið þegar ein rúðan á rútunni brotnaði framan í hann.

Saumuð voru þrettán spor í andlit Grossos sem var hreinlega heppinn að missa ekki annað augað.

Grosso stýrði Lyon í síðasta sinn þegar liðið tapaði fyrir Lille, 2-0, á sunnudaginn. Pierre Sage tekur tímabundið við Lyon-liðinu.

Grosso lék með Lyon á árunum 2007-09. Hann er hvað þekktastur fyrir þátt sinn í að Ítalía varð heimsmeistari 2006.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×