Innlent

Brýnt að Grind­víkingar fái skýr svör á næstu dögum

Heimir Már Pétursson skrifar
Síðast liðinn föstudag var vika liðin frá því fjögur þúsund Grindvíkingum var í skyndi gert að yfirgefa heimili sín og heimabæ.
Síðast liðinn föstudag var vika liðin frá því fjögur þúsund Grindvíkingum var í skyndi gert að yfirgefa heimili sín og heimabæ. Vísir/Vilhelm

Menningar- og viðskiptaráðherra segir brýnt að Grindvíkingar fái betri svör en hingað til frá lánastofnunum varðandi tilslakanir á lánum þeirra. Að öðrum kosti þurfi að bregðast við stöðunni á Alþingi.

Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra segir brýnt að Grindvíkingar fái lausn sinna mála hjá lánastofnunum semallra fyrst.Vísir/Vulhelm

Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra var spurð út í stöðu Grindvíkinga gagnvart lánastofnunum í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir minntist yfirlýsinga ráðherrans um að lánastofnanir hefðu ekki sýnt samfélagslega ábyrgð með því að ætla að leggja fulla vexti og verðtryggingu á skuldir Grindvíkinga í neyð.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata spurði viðskiptaráðherra í dag hversu lengi Grindvíkingar ættu að bíða fullnægjandi svara frá fjármálastofnunum.

„Hvernig ætlar ráðherrann að taka á þessu? Ætlar hún að grípa til einhverra aðgerða eða ætlar hún að láta sér nægja að biðla til samfélagslegrar ábyrgðarkenndar bankastofna og vona hið besta,“ spurði Þórhildur Sunna.

„Ég hef lýst því yfir að ég telji að fjármálastofnanir séu ekki að sýna fulla samfélagslega ábyrgð með því að rukka vexti og verðbætur. Skilaboðin sem Grindvíkingar fengu í síðustu viku voru býsna köld,“ sagði Lilja.

Grindvíkingum hefur aðeins gefist tækifæri tl að snúa til heimila sinna í nokkrar mínútur til að nálgast það allra brýnasta á heimilum þeirra.Vísir/Vilhelm

Stjórnvöld væru núna í samtali við fjármálastofnanir og hún gerði fastlega ráð fyrir að aðgerðir litu dagsins ljós í þessari viku

„Sjáum við ekki frekari aðgerðir núna á allra næstu dögum verðum við auðvitað að grípa til þeirra ráða sem við höfum hér. Og ég útiloka ekki að það verði býsna hressilegt,“ sagði viðskiptaráðherra.

Oddný G. Harðardóttir segir aðdáunarvert hvernig Grindvíkingar hafi brugðist við stöðunni.Vísir/Vilhelm

Oddný G. Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar sagði aðdáunarvert hvernig Grindvíkingar hefðu tekist á við ástandið í nær óbærilegri óvissu. Þeir þyrftu að fá svör.

„Til hvaða hressilegu aðgerða er ráðherra tilbúin til að grípa,“ spurði Oddný.

Viðskiptaráðherra sagði fjármálaráðherra hafa verið í viðræðum við fjármálastofnanir um helgina. Sjálf hefði hún einnig fengið þær upplýsingar frábankastjórum að von væri á svörum fljótlega.

„Þannig að ég held að við ættum líka að gefa þessu smá tíma. En ekki of mikinn tíma og við leggjum auðvitað öll mjög mikla áherslu á að Grindvíkingar fái mjög skýr skilaboð sem fyrst,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir.


Tengdar fréttir

Á meðan kvika er svo grunnt geti fólk ekki farið heim

Jarðeðlisfræðingur segir enn líklegast að gjósi nærri Hagafelli ef til eldgoss kemur. Ekki sé hægt að spá til um kvikuflæði fyrr en kvikan er komin upp. Hann segir íbúa ekki geta farið heim á meðan kvika mælist svo grunnt. 

Vonar að vinnu­veit­endur sýni björgunar­sveitar­fólki skilning

Almannavarnir hafa sent út fjöldaboð til allra björgunarsveita á landinu. Meiri mannskap þarf í verkefnið. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segist vonast til þess að vinnuveitendur taki tillit til þess þegar fólk með kunnáttu þurfi að hverfa frá vinnu. 

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum setur fjölmiðlum ótækar takmarkanir

Formaður Blaðamannafélags Íslands segir víðtækar takmarkanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum á störf fjölmiðla í og í kringum Grindavík ótækar. Fjölmiðlar væru hindraðir í að hafa eftirlit með aðgerðum yfirvalda og til að afla upplýsinga sem vörðuðu Grindvíkinga og allan almenning í landinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×