Innlent

Segja brotið á réttindum rúmenskra starfsmanna

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Rafís segir að brotið hafi verið á réttindum rúmenskra starfsmanna undirverktaka á Suðurlandi.
Rafís segir að brotið hafi verið á réttindum rúmenskra starfsmanna undirverktaka á Suðurlandi. Vísir/Vilhelm

Rafiðnaðarsamband Íslands segir að brotið hafi verið á réttindum rúmenskra starfsmanna hjá verktakafyrirtæki á Suðurlandi með því að afhenda þeim ekki launaseðla. Rúmensku starfsmennirnir hafi þannig ekki vitað hvað þeir höfðu í laun fyrir eða eftir skatta.

Frá þessu er greint í tilkynningu á vef Rafís. Segir þar að Hús fagfélaganna og Efling hafi farið í vinnustaðaeftirlit, ásamt fulltrúum frá stéttarfélaginu Bárunni, í mars á þessu ári á byggingarsvæði á Suðurlandi. Var þar rótgróinn íslenskur aðalverktaki með umsjón verksins, sem var bygging aðstöðu fyrir opinberan aðila að því er segir í tilkynningu frá Rafís. 

Eftirlitsfulltrúarnir hafi á vettvangi hitt rúmenska starfsmenn undirverktaka. Í ljós hafi komið að enginn þeirra hafði aðgang að launaseðli og þeir ekki vitað hvað þeir hefðu í laun, hvorki fyrir né eftir skatta. Grunsemdir hafi þá vaknað hjá eftirlitsaðilum um að brotið væri á réttindum þeirra. 

„Eftirlitsfulltrúarnir höfðu uppi á aðalverktakanum á svæðinu. Honum var gerð grein fyrir ákvæðum laga um keðjuábyrgð. Aðalverktaka er í þeim gert skylt að tryggja og bera ábyrgð á að allir starfsmenn, hvort sem um ræðir starfsmenn hans, undirverktaka eða starfsmannaleiga, sem koma að framkvæmd samnings fái laun, starfskjör, sjúkra- og slysatryggingar og önnur réttindi. Aðalverktakinn tók málið föstum tökum,“ segir í tilkynningu Rafís. 

Fengu ekki umsamda launahækkun í nóvember í fyrra

Þar á eftir hafi tekið við tímabil þar sem ítrekaðar en árangurslausar tilraunir hafi verið gerðar til að fá afhenta launaseðla og önnur gögn frá undirverktakanum. Aðalverktakinn hafi lagt stéttarfélögum lið með því að halda eftir lokagreiðslu til undirverktakans og segir að hann hafi gert skýlausa kröfu um að fullnægjandi gögnum yrði skilað til stéttarfélaganna. 

„Þessi aðferð bar þann árangur að nú í september bárust flest þau gögn sem beðið hafði verið eftir mánuðum saman, meðal annars launaseðlar, tímaskráningar og fyrirkomulag vinnunnar. Í ljós kom að starfsmönnunum, sem allir eru iðnaðarmenn án sveinsprófs en eru búsettir á Íslandi, hafði verið greitt undir taxta bæði þegar kom að dagvinnu og yfirvinnu,“ segir í tilkynningunn. 

Þá hafi verið staðið ranglega að styttingu vinnutíma, desember- og orlofsuppbætur hafi ekki verið greiddar auk þess sme launamennirnir fengu ekki umsamda kauphækkun 1. nóvember 2022. Starfsmönnum hafi sömuleiðis ekki verið greitt fyrir akstur.

„Aðalverktakinn hefur gert umræddum undirverktaka ljóst að ekki komi til lokagreiðslu fyrr en sýnt hefur verið fram á að gert hafi verið upp við umrædda starfsmenn. Afstaða hans hefur vegið þungt í málinu, sem fylgt verður eftir af fullri hörku allt til enda.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×