Innlent

Öku­maður al­var­lega slasaður eftir slys á Breið­holts­braut

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Slysið varð á Breiðholtsbraut þegar tveir bílar rákust saman á móts við Vatnsenda.
Slysið varð á Breiðholtsbraut þegar tveir bílar rákust saman á móts við Vatnsenda. Vísir/Vilhelm

Annar ökumannanna sem fluttur var á slysadeild eftir alvarlegt umferðarslys á Breiðholtsbraut í Reykjavík á tólfta tímanum í gær er alvarlega slasaður.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Slysið varð rétt austan við Ögurhvarf á móts við Vatnsenda.

Tveir bílar skullu þar saman. Skemmdust báðir bílar talsvert. Lögreglu barst tilkynning um slysið klukkan 23:33 og héldu viðbragðsaðilar strax á vettvang.

Áður hefur komið fram að beita hafi þurft klippum til að ná öðrum ökumannanna út úr bílnum. Samtals voru fjórir í bílunum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×