Nik Chamberlain tekur við kvennaliði Breiðabliks Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. október 2023 14:33 Nik Chamberlain gerði Þrótt að einu besta liði Bestu deildar kvenna eftir að hafa farið með liðið upp um deild. Vísir/Hulda Margrét Nik Chamberlain hefur skrifað undir samning um að þjálfa kvennalið Breiðabliks í Bestu deildinni næstu þrjú árin.
Vísir greindi frá þessum tíðindum fyrir tveimur dögum síðan en Breiðablik segir frá samningum í dag sem gildir út árið 2026. Nik tekur við liði Blika sem endaði í öðru sæti í Bestu deildinni í haust en liðið tryggði sér sæti í Evrópukeppninni með góðum endaspretti í deildinni. Blikarkonur komust í bikarúrslitin í sumar en töpuðu þar óvænt á móti B-deildarliði Víkings. Liðið lenti í mikilli lægð eftir það og missti af baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Ásmundur Arnarsson hætti fljótlega með liðið og þeir Gunnleifur Gunnleifsson og Kjartan Stefánsson kláruðu tímabilið saman ásamt þeim Ólafi Péturssyni og Önu Victoriu Cate. Nú er Nik Chamberlain ætlað að koma Blikakonum á toppinn á nýjan leik en Breiðablik varð síðast Íslandsmeistari árið 2020 þá í átjánda sinn. Ásamt því að þjálfa lið meistaraflokks kvenna er Nik ætlað að hafa stórt hlutverk í þróun og samstarfi eldri árganga í yngri flokkum Breiðabliks við Augnablik og meistaraflokk í samvinnu við aðra þjálfara félagsins. Honum er ætlað að styðja þannig við markmið félagsins sem uppeldis og afreksfélag eins og kemur fram í frétt á miðlum Breiðabliks. Nik hefur gert frábæra hluti með kvennalið Þróttar og undir hans stjórn náði kvennalið Þróttar bestu tímabilum sínum í sögunni. Hann tók við liðinu árið 2016 þegar liðið varð í B-deildinni. Þróttarakonur hafa eiginlega bætt sig á hverju tímabili og enduðu í þriðja sæti Bestu deildinni í sumar. Þær léku líka sinn fyrsta bikarúrslitaleik undir hans stjórn sumarið 2021. View this post on Instagram A post shared by Knattspyrnudeild Breiðabliks (@breidablik_fotbolti)
Besta deild kvenna Breiðablik Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Fleiri fréttir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjá meira