Þurfa að borga Slayer eftir allt saman Árni Sæberg skrifar 12. október 2023 16:29 Tom Araya, söngvari Slayer, er vafalítið ánægður með niðurstöðuna. Scott Dudelson/Getty Landsréttur hefur dæmt þrjú félög, sem tóku við rekstri tónlistarhátíðarinnar Secret solstice, og einn stjórnarmann þeirra til að greiða kröfu bandarísku þungarokkssveitarinnar Slayer óskipt.
K2 Agency Limited, umboðsfyrirtæki Slayer, hefur um nokkurra ára skeið reynt að krefja þáverandi og núverandi aðstandendur Secret Solstice um eftirstöðvar þóknunar sem sveitin var snuðuð um eftir að hún kom fram á hátíðinni sumarið 2018. Friðrik Ólafsson, skipuleggjandi hátíðarinnar, var dæmdur til að greiða umboðsfyrirtækinu eftirstöðvar skuldarinnar, meira en 133 þúsund dollara, jafnvirði meira en sautján milljóna króna árið 2020. Landsréttur staðfesti dóminn en Friðriki var synjað um leyfi til að áfrýja til Hæstaréttar. Ekkert fékkst þó upp í kröfuna eftir að upphaflegt rekstrarfélag hátíðarinnar fór í þrot. Umboðsfyrirtækið höfðaði þá mál á hendur Live Events ehf., L Events ehf., Lifandi viðburðum ehf. og Guðmundi Hreiðarssyni Viborg. Í héraði voru félögin og Guðmundur dæmd ábyrg fyrir kröfunni en Landsréttur sneri þeim dómi við. Hæstiréttur samþykkti í kjölfarið beiðni umboðsfyrirtækisins um málskot til réttarins. Hæstiréttur taldi að málið gæti haft fordæmisgildi um stofnun kröfu og greiðsluskyldu í tilviki fleiri skuldara. Niðurstaða Hæstaréttar var að sýkna Live Events ehf. af kröfu Slayer en ómerkja hluta Landsréttardómsins sem snerist um skaðabótakröfu hljómsveitarinnar á hendur hinum félögunum tveimur og stjórnarmanninum. Skuldbatt félagið ekki með loforði í fjölmiðlum Live Events ehf. var sýknað á grundvelli þess að ekki var talið að Víkingur Heiðar Arnórsson, framkvæmdastjóri Live events, eins félaganna sem tók yfir Secret Solstice, hefði skuldbundið félagið til að greiða kröfuna þegar hann lýsti því yfir í fjölmiðlum árið 2019 að gert yrði upp við þá tónlistarmenn sem fengu ekki greitt fyrir að koma fram á hátíðinni árið áður. Eftir stóð málsástæða Slayer þess efnis að verðmætum hefði verið ráðstafað frá gamla rekstrarfélaginu með ólögmætum og saknæmum hætti áður en félagið var tekið til gjaldþrotaskipta. Guðmundur og félögin þrjú hefðu hagnast á því. Vegna náinna eigna- og stjórnunartengsl yrði að samsama Guðmund og nýju félögin því gamla. Sami hópur fólks hafi staðið að öllum félögunum. Fyrri rekstraraðili þegar greitt þorra kröfunnar Eftir að leyfi til þess að áfrýja málinu til Hæstaréttar var veitt gerði Friðrik samkomulag við K2 Agency Limited um að stöðva innheimtu kröfunnar og að fella niður ábyrgð. Samkomulagið fól í sér að Friðrik greiddi umboðsfyrirtækinu 19,5 milljónir króna. Lækkaði umboðsfyrirtækið kröfu sína um það sem því nemur fyrir Hæstarétti. Hún hljóðaði því upp á um 12.700 dollara, jafnvirði rúmra 1,7 milljóna króna, þegar Landsréttur tók málið fyrir í annað sinn. Töldu sig ekki hafa bakað neitt tjón Fyrir Landsrétti í síðari atrennu báru félögin tvö og Guðmundur fyrir sig að umboðsfyrirtækið hefði ekki sýnt fram á að það hefði orðið fyrir tjóni við framsal eigna fyrra rekstrarfélags til nýrra. Í því sambandi var vísað til gagna sem lögð voru fyrir Landsrétt um lánveitingu tveggja nafngreindra félaga til Solstice Productions ehf., framsal þess lánssamnings til áfrýjandans Guðmundar og uppgjör milli Solstice Productions ehf. og Show ehf., síðar Lifandi viðburða ehf., þar sem fram kemur að síðargreinda félagið hafi leyst til sín allar eignir Solstice Productions ehf. Í dómi Landsréttar segir að að félögin þrjú, sem öll voru í eigu áfrýjandans Guðmundar, hafi verið rekin sem væru þau eitt félag. Gögn málsins beri einnig með sér að náin stjórnunartengsl hafi verið á milli Solstice Productions ehf., Lifandi viðburða ehf., Live events ehf. og L Events ehf. Þannig hafi sama fólkið haldið um stjórnartauma í öllum félögunum á þeim tíma sem eignir og rekstur Solstice Productions ehf. færðust til Lifandi viðburða ehf. 5. september 2018. Engin sennileg skýring sé á stofnun L-félaganna þriggja önnur en að þeim hafi verið ætlað að taka við eignum og rekstri Solstice Productions ehf., en skilja skuldirnar eftir í félaginu. Meðal þeirra réttinda sem Lifandi viðburðir ehf. hafi eignast við framsalið væri vörumerki Secret Solstice, sem væri forsenda þess að unnt væri að reka tónlistarhátíðina undir þeim merkjum sumarið 2019. Samkvæmt gögnum málsins hafi fyrst verið gert árangurslaust fjárnám hjá Solstice Productions ehf. í lok ágúst 2018 og félagið því verið ógjaldfært á þeim tíma sem eignayfirfærslan átti sér stað. „Með því að eignum félagsins var ráðstafað við þær aðstæður voru hagsmunir kröfuhafa þess, þar með talið stefnda, fyrir borð bornir.“ Hefðu fengið greitt ef ekki fyrir fléttuna Í dóminum segir að það hafi staðið félögunum tveimur og Guðmundi næst að sýna fram á að Slayer hefði ekki fengið fjárkröfu sína greidda ef eignir Solstice Productions ehf. hefðu ekki verið framseldar til Lifandi Viðburða ehf. Í því sambandi sé einnig til þess að líta að krafan hafi verið lækkuð verulega fyrir dómi. Af gögnum málsins verði engu slegið föstu um raunverulegt verðmæti eignanna sem framseldar voru. Þó megi ætla að þar hafi vörumerki Secret Solstice ásamt þeim viðskiptasamböndum sem því fylgdu vegið þyngst vegna tekjuöflunarmöguleika sem í tónlistarhátíðinni fólust. Hafi það einnig verið svo að afrakstur hátíðarinnar sem haldin var sumarið 2019 rann til Live events ehf. og L Events ehf., dótturfélaga Lifandi viðburða ehf., í samræmi við ráðagerð stjórnenda félaganna. Samkvæmt framangreindu verði lagt til grundvallar að höfuðstóll kröfu Slayer hefði fengist greiddur ef ekki hefði komið framsalsins. „Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms er staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að stjórnendur félaganna sem að umræddri ráðstöfun komu hafi með saknæmum og ólögmætum hætti valdið stefnda fjártjóni, sem áfrýjendurnir Lifandi viðburðir ehf. og L Events ehf. beri skaðabótaábyrgð á.“ Þá staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms þess efnis að Guðmundur beri einnig ábyrgð á tjóni Slayer á grundvelli almennra reglna skaðabótaréttar. Því var öllum stefndu gert að greiða kröfu Slayer óskipt, að frádreginni innborgun Friðriks, sem nefnd var hér að framan. Félögin tvö og Guðmundur þurfa því að greiða um þrettán þúsund Bandaríkjadali, sem jafngildir um 1,8 milljónum króna, auk málskostnaðar upp á 3,7 milljónir króna, óskipt.
Secret Solstice Tónlist Dómsmál Tengdar fréttir Slayer-dómur til kasta Hæstaréttar Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni K2 Agency Limited, umboðsfyrirtækis bandarísku þungarokkssveitarinnar Slayer, um að taka fyrir dóm Landsréttar þar sem aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice voru sýknaðir af hluta af kröfu um greiðslu skuldar við sveitina. 22. september 2022 13:18 Hæstiréttur vísar deilu Slayer við Secret Solstice aftur til Landsréttar Deila bandarísku þungarokkssveitarinnar Slayer við aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice heldur áfram að velkjast um fyrir íslenskum dómstólum eftir að Hæstiréttur vísaði hluta málsins aftur til Landsréttar í dag. Eitt félaganna sem tók við rekstri hátíðarinnar var sýknað af kröfu hljómsveitarinnar. 4. apríl 2023 14:02 337 milljóna króna gjaldþrot Solstice Productions Gjaldþrot Solstice Productions, sem stóð fyrir tónlistarhátíðinni Secret Solstice, nam 337 milljónum króna. Engar eignir fundust í þrotabúinu upp í skuldir. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu í dag. 15. nóvember 2021 09:06 Engar eignir í þrotabúi rekstrarfélags Secret Solstice Engar eignir fundust í þrotabúi Solstice Productions ehf. sem hélt tónlistarhátíðina Secret Solstice tónlistarhátíðina í Laugardalnum í nokkur ár og Guns N' Roses tónleika hér á landi árið 2018. Félagið var úrskurðað gjaldþrota í maí í fyrra. 7. október 2021 13:55 Fær ekki að áfrýja Slayer-dómi Friðrik Ólafsson, forsvarsmaður Solstice Productions, sem stóð fyrir tónlistarhátíðinni Secret Solstice fékk ekki heimild Hæstaréttar til að áfrýja dómi þar sem hann var dæmdur til að greiða umboðsfyrirtæki bandarísku hljómsveitarinnar Slayer um tuttugu milljónir króna. 20. janúar 2022 08:54 Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Sjá meira
Slayer-dómur til kasta Hæstaréttar Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni K2 Agency Limited, umboðsfyrirtækis bandarísku þungarokkssveitarinnar Slayer, um að taka fyrir dóm Landsréttar þar sem aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice voru sýknaðir af hluta af kröfu um greiðslu skuldar við sveitina. 22. september 2022 13:18
Hæstiréttur vísar deilu Slayer við Secret Solstice aftur til Landsréttar Deila bandarísku þungarokkssveitarinnar Slayer við aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice heldur áfram að velkjast um fyrir íslenskum dómstólum eftir að Hæstiréttur vísaði hluta málsins aftur til Landsréttar í dag. Eitt félaganna sem tók við rekstri hátíðarinnar var sýknað af kröfu hljómsveitarinnar. 4. apríl 2023 14:02
337 milljóna króna gjaldþrot Solstice Productions Gjaldþrot Solstice Productions, sem stóð fyrir tónlistarhátíðinni Secret Solstice, nam 337 milljónum króna. Engar eignir fundust í þrotabúinu upp í skuldir. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu í dag. 15. nóvember 2021 09:06
Engar eignir í þrotabúi rekstrarfélags Secret Solstice Engar eignir fundust í þrotabúi Solstice Productions ehf. sem hélt tónlistarhátíðina Secret Solstice tónlistarhátíðina í Laugardalnum í nokkur ár og Guns N' Roses tónleika hér á landi árið 2018. Félagið var úrskurðað gjaldþrota í maí í fyrra. 7. október 2021 13:55
Fær ekki að áfrýja Slayer-dómi Friðrik Ólafsson, forsvarsmaður Solstice Productions, sem stóð fyrir tónlistarhátíðinni Secret Solstice fékk ekki heimild Hæstaréttar til að áfrýja dómi þar sem hann var dæmdur til að greiða umboðsfyrirtæki bandarísku hljómsveitarinnar Slayer um tuttugu milljónir króna. 20. janúar 2022 08:54