Fótbolti

Paris Saint-Germain aftur á sigurbraut

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Randal Kolo Muani skoraði þriðja mark PSG í kvöld.
Randal Kolo Muani skoraði þriðja mark PSG í kvöld. Marc Atkins/Getty Images

Frönsku meistararnir í Paris Saint-Germain unnu öruggan 3-1 útisigur er liðið heimsótti Rennes í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Eftir jafntefli gegn botnliði Clermont í síðustu umferð þurfti stórlið PSG að snúa genginu við til að halda í við topplið Monaco.

Vitinha kom liðinu yfir gegn Rennes í kvöld á 32. mínútu áður en Achraf Hakimi tvöfaldaði forystuna fjórum mínútum síðar eftir stoðsendingu frá hinum 17 ára Warren Zaire-Emery.

Amine Gouiri minnkaði þó muninn fyrir Rennes snemma í síðari hálfleik, en Randal Kolo Muani tryggði gestunum öruggan 3-1 sigur á 58. mínútu með sinni fyrstu snertingu eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

PSG er nú með 15 stig í þriðja sæti deildarinnar að átta umferðum loknum, tveimur stigum á eftir toppliði Monaco. Rennes situr hins vegar í áttunda sæti með 11 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×