Fótbolti

Níunda fall Hermanns á ferlinum

Hjörvar Ólafsson skrifar
Hermann Hreiðarsson þekkir það mæta vel að róa lífróður. 
Hermann Hreiðarsson þekkir það mæta vel að róa lífróður.  Vísir/Hulda Margrét

Hermann Hreiðarsson og lærisveinar hans hjá ÍBV féllu úr Bestu deild karla í fótbolta í dag. Þar af leiðandi hefur Hermann fallið níu sinnum á ferli sínum sem leikmaður og þjálfari og þar að auki einu sinni sem aðstoðarmaður knattspyrnustjóra. 

Hermann féll fimm sinnum sem leikmaður úr ensku úrvalsdeildinni, fyrst með Crystal Palace vorið 1998, því næst með Wimbledon 2000, þá með Ipswich Town árið 2002, þegar hann lék með Charlton Athletic á því herrans árið 2007 og loks með Portsmouth 2010. 

Af þeim sökum deilir Hermann lítt eftirsóknarverðu meti með Nathan Blake yfir flest föll úr ensku úrvalsdeildinni. Hermann átti svo lítinn þátt í falli Coventry City árið 2012 en hann lék tvo leiki fyrir liðið á meiðslum hrjáðu tímabili þann veturinn.

Bæði karla- og kvennalið Fylkis hlutu þau örlög að falla undir stjórn Hermanns haustin 2016 og 2017 en hann tók við kvennaliði Árbæinga í snúinni stöðu um mitt sumarið 2017. 

Vorið 2020 var Hermann síðan aðstoðarmaður Sol Campbell sem var við stjórnvölinn hjá Southend United sem fór niður úr ensku C-deildinni það tímabilið.  

Það varð svo ljóst í dag að Eyjamenn munu leika í næstefstu deild á næsta keppnistímabili en Hermann hefur verið í brúnni hjá ÍBV síðan um haustið 2021. 

Hermann hefur svo á móti farið upp úr 2. deild karla sem þjálfari Þróttar Vogum en hann hefur á þjálfaraferli sínum einnig verið í þjálfarateymi Karala Blasters í indversku ofurdeildinni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×