Fótbolti

Alfreð kom inn af bekknum og skoraði í tapi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Alfreð Finnbogason skoraði eina mark Eupen.
Alfreð Finnbogason skoraði eina mark Eupen. Harry Langer/DeFodi Images via Getty Images

Alfreð Finnbogason skoraði eina mark Eupen er liðið mátti þola 1-3 tap gegn St. Liege í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Eupen, en hann gat ekki komið í veg fyrir að gestirnir hefðu tveggja marka forskot í hálfleik. Bær'ði mörk gestanna voru skoruð í uppbótartíma fyrri hálfleiks og því eins og blaut tuska í andlit heimamanna.

Gestirnir bættu svo þriðja markinu við þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka áður en Alfreð Finnbogason minnkaði muninn fyrir Eupen fimm mínútum síðar, en hann hafði komið inn á sem varamaður á 68. mínútu.

Fleiri urðu mörkin þó ekki og niðurstaðan varð 1-3 sigur St. Liege sem nú er með sex stig eftir sjö leiki í 12. sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir Eupen sem situr í níunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×