Fótbolti

Villa komið með annan fótinn í riðla­keppnina

Smári Jökull Jónsson skrifar
Ollie Watkins skoraði þrennu í kvöld.
Ollie Watkins skoraði þrennu í kvöld. Vísir/Getty

Aston Villa er svo gott sem búið að tryggja sér sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar UEFA eftir öruggan 5-0 sigur á Hibernian frá Skotlandi á útivelli í kvöld.

Um var að ræða fyrri leik liðanna í umspili en sigurvegari einvígisins tryggir sér sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar UEFA.

Villa byrjaði með látum og var búið að tryggja sér sigur strax í fyrri hálfleik. Ollie Watkins skoraði tvö fyrstu mörkin og Leon Bailey bætti því þriðja við skömmu fyrir hálfleik.

Strax í upphafi síðari hálfleik fullkomnaði Watkins síðan þrennuna og Douglas Luiz skoraði fimmta og síðasta mark Aston Villa úr vítaspyrnu á 74. mínútu.

Lokatölur 5-0 og Villa því í afar góðri stöðu fyrir heimaleikinn í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×