Lífið

Annað barn Ri­hönnu og A$AP komið í heiminn

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Rihanna og A$AP eru eitt heitasta par Hollywood.
Rihanna og A$AP eru eitt heitasta par Hollywood. Getty

Annað barn söngkounnar Rihönnu og rapparans A$AP Rocky er komið í heiminn samkvæmt heimildum slúðurblaða vestanhafs.

Samkvæmt heimildum TMZ fæddist annar drengur stjörnuparsins þann 3. ágúst síðastliðinn í Los Angeles. Ekki er vitað hvað drengurinn heitir en heimildir herma að nafn hans byrji á bókstafnum R.

Söngkonan greindi frá því að hún gengi með barn á hálfleikssýningu Ofurskálarinnar í febrúar. Fyrir á parið einn son sem fæddist í maí á síðasta ári. Sonurinn, sem ber nafnið RZA Athelston Mayers, var tæplega sjö mánaða gamall þegar Rihanna frumsýndi hann á TikTok síðu sinni. Myndbandið er nú með nær 37 milljón áhorf. 

Rihanna og A$AP Rocky hafa verið opinberlega í ástarsambandi síðan í upphafi síðasta árs en síðan þá hefur rapparinn A$AP bæði verið sakaður um framhjáhald og skotárás. Sögur af framhjáhaldi voru þó taldar stórlega ýktar en hann kom fram fyrir dómi í ágúst síðastliðnum og lýsti yfir sakleysi sínu.


Tengdar fréttir

Ri­hanna og A$AP eiga von á öðru barni

Netheimar loguðu þegar tónlistarkonan Rihanna steig á svið í hálfleik Ofurskálarinnar í gær. Tónlistarkonan steig síðast á svið fyrir fimm árum síðan og því mikil eftirvænting meðal aðdáenda hennar. Ekki bara það heldur skartaði hún óléttubumbu en aðeins níu mánuðir er síðan frumburður hennar og A$AP Rocky kom í heiminn. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×