Innlent

Píeta vill opna gjaldfrjálsa þjónustu í öllum landshlutum

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Húsavík
Húsavík

Píeta-samtökin stefna að því að opna úrræði með gjaldfrjálsri þjónustu í hverjum landshluta fyrir þá sem glíma við sjálfsvígshugsanir. Nýtt Píeta-skjól verður opnað á Húsavík í dag en um sjö hundruð leita til samtakanna á hverju ári.

Nýtt svokallað Píetaskjól, sem verður með aðsetur í stjórnsýsluhúsinu í Húsavík, verður opið að minnsta kosti einu sinni í viku og annars eftir þörfum en þar geta þau sem er með sjálfsvígshugsanir og aðstandendur þeirra leitað sér aðstoðar. 

Einar Hrafn Stefánsson, kynningarstjóri samtakanna, segir reynsluna sýna að staðbundin þjónusta gefist sérstaklega vel þrátt fyrir að einnig sé boðið upp á fjarfundi og símaviðtöl allan sólarhringinn.

„Okkur finnst alltaf best að vera á staðnum og vera nálægt þessum einstaklingum. Við bjóðum upp á gjaldfrjálsa þjónustu fyrir átján ára og eldri og erum með allt að tólf viðtöl fyrir einstaklinga í vanda og allt að fimm viðtöl fyrir aðstandendur. Þessi vinna er liður í markmiði okkar að breiða út þjónustu samtakanna og auka aðgengi á landsbuggðinni. Og tryggja að Píeta-röddin heyrist sem víðast,“ segir Einar.

Einar Hrafn Stefánsson er markaðs- og kynningarstjóri Píeta-samtakanna.Anna Maggý

Eftirspurn eftir þjónustu samtakanna hefur aukist gríðarlega frá því að starfsemin hófst fyrir fimm árum og nú leita að meðaltali um sjö hundruð manns til þeirra á hverju ári. Samtökin eru nú þegar með sambærileg úrræði í Reykjavík og á Akureyri og ætla víðar - ekki síst til að geta sinnt sjálfsvígsforvörnum.

„Það er markmiðið hjá okkur að ná í öll landshornin og erum að skoða hvort við getum ekki stækkað á vesturhornið og fyrir austan og það er á langtímaplani. Vonandi gerist það bara sem fyrst,“ segir Einar.

Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Píeta samtökin. Síminn hjá Pieta-samtökunum er opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×