Fótbolti

Gerrard byrjar á sigri gegn Ron­aldo-lausu Al Nassr

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Gerrard byrjar vel í Sádi-Arabíu.
Gerrard byrjar vel í Sádi-Arabíu. Essa Doubisi/Getty Images

Lærisveinar Steven Gerrard í Al Ettifaq byrjuðu tímabilið í sádiarabísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á 2-1 sigri á Al Nassr. Sadio Mané leiddi framlínu gestanna í fjarveru Cristiano Ronaldo sem er að glíma við meiðsli.

Mané var einnig fyrirliði Al Nassr í leiknum á meðan Jordan Henderson var fyrirliði heimamanna. Téður Mané kom gestunum yfir snemma leiks og reyndist það eina mark fyrri hálfleiks.

Í síðari hálfleik jafnaði hinn sænski Robin Quaison metin áður en franski framherjinn Moussa Dembélé skoraði það sem reyndist sigurmarkið stuttu síðar. 

Lokatölur 2-1 Al Ettifaq í vil og reyndust það lokatölur þó svo að Mané hafi komið boltanum í netið undir lok leiks, markið hins vegar dæmt af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×