Fótbolti

Náðu í fimmtu stjörnuna frá Evrópu í sumar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Franck Kessie í leik með Barcelona en hann stoppaði stutt á Spáni.
Franck Kessie í leik með Barcelona en hann stoppaði stutt á Spáni. Getty/Gongora

Sádí-arabíska félagið Al-Ahli hefur keypt miðjumanninn Franck Kessie frá spænska stórliðinu Barcelona.

Hann er fimmti stjörnuleikmaðurinn frá Evrópu sem Al-Ahli fær til sín í sumar.

Áður hafði Al-Ahli náð í þá Édouard Mendy, Roberto Firmino, Riyad Mahrez og Allan Saint-Maximin úr ensku úrvalsdeildinni.

Félagið borgaði Barcelona 13,7 milljónir dollara fyrir Kessie en hafði borgað Manchester City 38,5 milljónir dollara fyrir Mahrez, Chelsea 20 milljónir dollara fyrir Mendy og Newcastle 29,5 milljónir dollar fyrir Saint-Maximin. Fimino kom á frjálsri sölu frá Liverpool.

Austurríkismaðurinn Matthias Jaissle tók líka við þjálfun liðsins í sumar. Hann er aðeins 35 ára gamall en hafði stýrt austurríska liðinu Red Bull Salzburg í tvö ár.

Al-Ahli er nýliði í sádí-arabísku deildinni og menn ætla sér að mæta með alvöru lið í bestu deildina þeirra.

Kessie er miðjumaður og Mendy er markvörður en hinir þrír eru sóknarmenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×