Sport

Bronsstelpan okkar á heimsleikunum þarf á stuðningi að halda

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bergrós Björnsdóttir með Anníe Mist Þórisdóttir en þær kepptu saman í tveggja manna liði í byrjun ársins.
Bergrós Björnsdóttir með Anníe Mist Þórisdóttir en þær kepptu saman í tveggja manna liði í byrjun ársins. @bergrosbjornsdottir

Bergrós Björnsdóttir var eini Íslendingurinn á verðlaunapalli á heimsleikunum í ár en hún varð þriðja sæti í flokki sextán til sautján ára stúlkna.

Bergrós sýndi mikinn andlegan styrk og þrautseigju með því að komast í gegnum hitaslag á fyrsta degi, halda keppni áfram og tryggja sér síðan bronsið með því að ná öðru sæti í næstsíðustu grein og vinna síðan síðustu grein keppninnar.

Hin sextán ára Bergrós er ekki atvinnumaður eins og þau Katrín Tanja Davíðsdóttir, Anníe Mist Þórisdóttir eða Björgvin Karl Guðmundsson.

Keppendur í aldursflokkunum fá ekkert verðlaunafé eins og keppendur í meistaraflokkunum þrátt fyrir góða frammistöðu. Þau eldri fá stór peningaverðlaun fyrir hvert einasta sæti í keppninni en unglingarnir fá engin slík peningaverðlaun.

Þetta þýðir að Bergrós þarf að standa að öllum kostnaði sjálf, ekki bara fyrir sig heldur einnig fyrir þjálfara sinn og móður hennar sem kom með þar sem hún er bara sextán ára gömul.

Allur ferðakostnaður og uppihald í Bandaríkjunum lendir því á Bergrós og foreldrum hennar.

Bergrós hafði í aðdraganda heimsleikana leitað eftir stuðningi við það að safna fyrir ferðalaginu til Madison.

Hún fór líka á heimsleikana í fyrra og ætti að geta komist þangað á næsta ári þegar hún verður á eldra ári í sínum flokki.

Það liggur því í augum uppi að ef að Bergrós ætli að halda áfram að keppa við þær bestu í heimi í sínum aldursflokki þá þarf hún að safna dágóðri upphæð.

Opnaður hefur verið styrktarreikningur fyrir Bergrós og má finna hann hér fyrir neðan.

  • Styrktarreikningur fyrir Bergrós Björnsdóttur:

  • Reikningsnúmer: 0511-14-013564
  • Kennitala: 060207-2160



Fleiri fréttir

Sjá meira


×