Sport

Heimsmeistarinn æfir með nýja barnið framan á sér

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tia-Clair Toomey tekur barnið sitt með í æfingasalinn en Willow  dóttir hennar er ekki orðin tveggja mánaða gömul.
Tia-Clair Toomey tekur barnið sitt með í æfingasalinn en Willow  dóttir hennar er ekki orðin tveggja mánaða gömul. Skjámynd/Youtube

Sexfaldi heimsmeistarinn Tia-Clair Toomey er byrjuð að æfa á nýjan leik eftir að hafa eignast sitt fyrsta barn í vor. Toomey sýndi frá einni æfingu sinni og barnið fékk að vera með.

Toomey hefur unnið sex síðustu heimsmeistaratitla kvenna í CrossFit en verður ekki með í ár þar sem hún er í barneignarfríi.

Toomey eignaðist Willow sína 9. maí síðastliðinn en hún var dugleg að æfa alveg fram að fæðingu og reyndi við flestar æfingarnar í opna hlutanum.

Hin eins og hálfs mánaða Willow er þegar farin að kynnast vel æfingasalnum enda ætlar mamma hennar ekkert að slaka á.

Tia-Clair sýndi frá einni æfingu sinni á dögunum þar sem hún var með nýja barnið framan á sér.

Toomey nýtti í raun barnið sitt sem eins konar þyngingarvesti sem gerði æfingarnar allt annað en auðveldari.

Tia skýrði myndbandið „Geri það sem ég þarf að gera“ en það er ekkert skrýtið að nú séu sumir farnir að kalla hana ofurmömmu.

Það má sjá myndbandið frá æfingunni hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×