Sport

Ís­lenska rigningin stoppar ekki reynslu­boltana í undir­búningi fyrir heims­leikana

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anníe Mist Þórisdóttir og Björgvin Karl Guðmundsson við æfingu í rigningunni í gær.
Anníe Mist Þórisdóttir og Björgvin Karl Guðmundsson við æfingu í rigningunni í gær. Instagram/@anniethorisdottir

Anníe Mist Þórisdóttir og Björgvin Karl Guðnundsdóttir eru bæði að undirbúa sig fyrir heimsleikana í byrjun ágúst en það gera þau hér heima á Íslandi.

Hluti af undirbúningnum er að æfa úti á frjálsíþróttavelli og það gerðu þau í níutíu mínútur í rigningunni í gær.

Anníe Mist og Björgvin Karl eru auðvitað miklir reynsluboltar, Anníe Mist er að keppa á sínum tólftu heimsleikum í einstaklingsflokki og Björgvin er á sínum tíundu.

Það er nauðsynlegt í undirbúningnum að hlaupa líka úti og gera mögulegar æfingar sem fara fram utanhúss. Það er von á öllu mögulegu á heimsmeistaramótinu.

Aðstæðurnar í Madison í Bandaríkjunum verða þó allt öðruvísi en þær eru á Íslandi.

Það er alveg ljóst að hitinn mun spila stórt hlutverk á heimsleikunum enda hásumar þar þegar leikarnir fara fram.

Anníe Mist og Björgvin Karl breyta aftur á móti ekki hitastiginu á Íslandi en þau létu aðstæðurnar í gær ekki stoppa sig í að ná góðri æfingu þrátt fyrir rigninguna.

Keppnisskapið er líka á réttum stað og það mátti sjá það þegar þau tóku létta keppni sem Anníe setti inn á samfélagsmiðla sína.

Fyrst var að svolgra niður drykk og taka í framhaldinu handgöngukapphlaup. Kapphlaupið má sjá hér fyrir neðan en hver ætli hafi unnið?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×