Fótbolti

Sjáðu TM-mótið í Eyjum: Spenntir hvalir, eld­hressar stelpur og fullt af plokk­fiski

Sindri Sverrisson skrifar
Breiðablik stóð uppi sem sigurvegari á TM-mótinu og það var glatt á hjalla hjá sigurliðinu þegar Svava ræddi við það.
Breiðablik stóð uppi sem sigurvegari á TM-mótinu og það var glatt á hjalla hjá sigurliðinu þegar Svava ræddi við það. Stöð 2 Sport

Það var mikið fjör í Vestmannaeyjum um síðustu helgi þar sem 1.100 stelpur sýndu fótboltasnilli sína á TM-mótinu í fótbolta. Nýr slagari úr smiðju Jóns Jónssonar, tileinkaður krakkamótunum í Eyjum, ómaði um svæðið og stelpurnar virtust njóta sín í botn á eyjunni fögru.

Eyjamærin Svava Kristín Gretarsdóttir var á svæðinu og safnaði efni í þátt Sumarmótanna á Stöð 2 Sport sem sýndur var í gær. Hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni.

Klippa: TM-mótið í Eyjum 2023

Svava ræddi við stelpur úr fjölda liða en tók líka hvali, fyrrverandi landsliðsfólk og kokk mótsins tali, eins og sjá má hér að ofan.

Frá árinu 1990 hafa stelpur hvaðanæva af landinu mætt til Eyja á sumrin til að spila á mótinu og í þetta sinn voru þær um 1.100 talsins, í 116 liðum frá 35 félögum.

„Það er allt orðið eins og vel smurð vél. Það fara allir í sitt hlutverk og þetta rúllar mjög vel allt saman,“ sagði Sigríður Inga Kristmannsdóttir, mótsstjóri, sem útskýrði jafnframt af hverju dómararnir virtust kannski hanga helst til mikið í símanum á mótinu. Ástæðan væri jú sú að þeir færðu inn mörk í leikjum jafnharðan.

Stelpurnar frá Akranesi skoruðu mörk eins og þeim er eðlislægt.Stöð 2 Sport

Hvalirnir alveg jafnspenntir og börnin

Svava heilsaði líka upp á mjaldrana Litlu-hvít og Litlu-grá , og ræddi við Línu Katrín Þórðardóttur hjá Sea Life Trust. Stelpurnar fengu að heilsa þessum hvítu hvölum og voru spenntar:

„Jú, en þær líka. Þær elska börn og verða alveg brjálaðar þegar þær sjá litla krakka, og eru hérna í útsýnisglugganum. Þannig að það eru allir jafnspenntir, börnin og þær,“ sagði Lína Katrín.

Jón Jónsson flutti lagið „Fótbolti úti í Eyjum“ og um það bil 1.000 stelpur tóku vel undir.Stöð 2 Sport

Man eftir fjörinu og „tuddurum“ úr ÍBV

Á mótinu var einnig fyrrverandi landsliðsfólk eins og Katrín Ómarsdóttir sem nú er þjálfari hjá KR og á, eins og fleiri, kærar minningar úr Eyjum.

„Ég man bara að það var gaman. Við fórum að spranga og ég man að ÍBV voru mjög miklir tuddarar. Það situr í mér, en annars bara gaman,“ sagði Katrín sposk á svip.

Stelpurnar í Hamri settu sinn svip á mótið með litríkum hætti.Stöð 2 Sport

„Verður ekki neitt ef þú étur ekki neitt“

Í veitingasalnum ræddi Svava við Einsa kalda sem sá til þess að stelpurnar hefðu næga orku á mótinu, og var með fjölmörg föt af plokkfiski tilbúin. Íslandsmeistararnir úr handboltaliði ÍBV sáu um að skammta á diskinn og Kári Kristján Kristjánsson grínaðist með að sumir þyrftu nú að borða meira. „Þú verður ekki neitt ef þú étur ekki neitt,“ sagði húmoristinn og línumaðurinn.

Í sjokki eftir fyrsta markið í úrslitaleiknum

Leikur landsliðsins og pressuliðsins er ómissandi hluti af TM-mótinu en þar vann pressuliðið að þessu sinni, 5-2 sigur.

Í úrslitaleik mótsins mættust svo Selfoss og Breiðablik þar sem Blikastelpur höfðu betur, 3-0. Thelma Gautadóttir skoraði eitt mark og Yasmin Ísold Rósa Rodrigues skoraði tvö:

„Ég var bara í sjokki,“ sagði Yasmin um fyrsta mark leiksins, sem hún skoraði með föstu skoti af löngu færi, en hún bjóst síst við því að boltinn færi alla leið í netið: „Alls ekki!“

TM-mótið er eitt af Sumarmótunum sem sýnd eru á Stöð 2 Sport í sumar. Næsta mót er Norðurálsmótið sem fram fer á Akranesi nú um helgina.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×