Sevilla vann Evrópu­deildina eftir víta­spyrnu­keppni

Leikmenn Sevilla fögnuðu vel í leikslok.
Leikmenn Sevilla fögnuðu vel í leikslok. Vísir/Getty

Sevilla er sigurvegari Evrópudeildarinnar í enn eitt skiptið eftir sigur á Roma í vítaspyrnukeppni í kvöld. Þetta er í sjöunda skipti sem Sevilla vinnur sigur í keppninni.

Leikurinn í kvöld fór fram á Puskas Arena í Ungverjalandi en Sevilla er sigursælasta lið keppninnar frá upphafi. Roma er undir stjórn Jose Mourinho sem freistaði þess að bæta enn einum titlinum í sitt magnaða bikarasafn.

Nemanja Matic hjálpar Fernando í leikum.Vísir/Vilhelm

Það voru Rómverjar sem komust yfir í leiknum í kvöld. Paulo Dybala skoraði þá á 34. mínútu leiksins og staðan í hálfleik var 1-0. Eftir tíu mínútna leik jafnaði Sevilla eftir sjálfsmark frá Gianluca Mancini og allt orðið jafnt.

Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1-1 og sömuleiðis eftir framlenginguna. Því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni.

Lucas Ocampos og Bryan Christante skoruðu í fyrstu umferðinni líkt og Erik Lamela gerði fyrir Sevilla í annarri umferð. Þá klikkaði hins vegar Mancini á sinni spyrnu, ekki góður dagur hjá honum í dag.

Leikmenn Sevilla í vítaspyrnukeppninni.Vísir/Vilhelm

Ivan Rakitic kom Sevilla í 3-1 með því að skora úr þriðju spyrnu Sevilla en Roger Ibanez misnotaði næstu spyrnu Roma og spænska liðið í kjörstöðu. Gonzalo Montiel, sem tryggði Argentínu sigurinn á heimsmeistaramótinu með því að skora úr síðustu spyrnu liðsins í úrslitum gegn Frökkum, steig næst á punktinn og gat tryggt titilinn.

Hann klikkaði en fékk að taka spyrnuna aftur þar sem markvörðurinn Rui Patricio steig yfir línuna í spyrnunni. Montiel klikkaði ekki í annað sinn og tryggði Sevilla þriðja sigur sinn í keppninni við mikinn fögnuð stuðningsmanna liðsins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira