Innlent

Hitti Karl óvænt daginn fyrir krýningu og færði honum kveðju frá Íslandi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Karl virtist ánægður með kveðjuna frá Íslandi. Myndband Herborgar sem þessi skjáskot eru úr má finna neðst í fréttinni.
Karl virtist ánægður með kveðjuna frá Íslandi. Myndband Herborgar sem þessi skjáskot eru úr má finna neðst í fréttinni. Skjáskot

Karl þriðji Bretakonungur var krýndur við mikilfenglega athöfn í Westminster Abbey, þá fyrstu sinnar tegundar í sjötíu ár, nú skömmu fyrir hádegi. Þúsundir hafa safnast saman í London til að fylgjast með krýningunni. Íslensk kona sem hitti konunginn fyrir tilviljun í gær lýsir mögnuðu andrúmslofti í borginni.

Á þriðja þúsund manns var boðið til athafnarinnar sem hófst formlega klukkan tíu í morgun, eftir að Karli konungi og Kamillu drottningu hafði verð ekið að Westminster Abbey í konunglegum hestvagni. Það var svo nákvæmlega klukkutíma síðar sem erkibiskupinn af Kantaraborg færði krýningarkórónuna, ómetanlegan dýrgrip frá 1661, á höfuð Karls og krýndi hann konung. Horfa má á krýninguna í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Karl III krýndur

Aldrei hefur liðið jafnlangt á milli krýninga þjóðhöfðinga landsins. Síðast var það móðir Karls, Elísabet II, sem krýnd var drottning árið 1953. Gríðarlegur mannfjöldi fagnar nú krýningunni í London. Hin íslenska Herborg Svana Hjelm lýsir rafmögnuðu andrúmslofti í borginni.

„Það eru allir með kórónur og hatta og flögg og það er rosa gaman hérna og mikil stemning í borginni. Rosa mikið af fólki,“ segir Herborg.

Herborg Svana Hjelm.

Ekki eru þó allir hliðhollir konunginum, mótmælendur voru handteknir í borginni nú í morgun. Herborg segir slíkt þó í miklum minnihluta.

„Það eru nokkrir með svona flögg sem stendur á: Ekki minn konungur. Við sáum það reyndar í morgun.“

Gekk óvænt í flasið á Karli

Það var svo fyrir ótrúlega tilviljun sem Herborg hitti Karl konung sjálfan fyrir utan Buckingham-höll í gær  og tók í hönd hans.

„Við ákváðum að labba að höllinni af því að í dag yrði svo mikið af fólki. Svo sáum við bílaraðir af alls konar bílum og vorum að hlæja að því hvort við myndum sjá einhvern frægan. Svo heyri ég kallað: „The king is coming!“ [ísl. Konungurinn er á leiðinni]. Og ég kemst að og náði að heilsa honum, þetta var alveg ótrúlegt. Þetta var bara súrrealískt. Eins og ég segi, maður er bara emotional eftir þetta.“

Herborg tók atvikið upp á myndband, sem sjá má hér fyrir neðan. Fyrst heyrum við í bandarískri konu við hlið Herborgar ræða við Karl. Herborg tjáir Karli svo að hún sé frá Íslandi, sem Karli virðist líka ágætla. „Ísland!“ hefur konungurinn eftir Herborgu, áður en hann snýr sér að næsta aðdáanda. 


Tengdar fréttir

Harry mætti einsamall

Eins og við var að búast mætti Harry Bretaprins einsamall í krýningarathöfn föður síns í Westminster Abbey í dag. Miklar vangaveltur voru uppi um hvort hann og Meghan Markle myndu mæta í athöfnina þar til það kom fram í yfirlýsingu frá Buckingham höll að Harry myndi mæta einn.

Bein útsending frá krýningu Karls III á Vísi og Stöð 2 Vísi

Bein útsending verður frá krýningu Karls III konungs Bretlands og hátíðarhöldum í kringum hana á Vísi og Stöð 2 Vísi í dag. Útsendingin hefst klukkan 8:45 og mun Heimir Már Pétursson fréttamaður lýsa því sem fram fer frá um klukkan 9:20.

Þúsundir manna bíða konungshjónanna nú þegar á götum Lundúnaborgar

Það verður mikið um dýrðir þegar Karl III verður krýndur konungur Bretlands og fimmtán samveldisríkja í Lundúnum á morgun. Þúsundir Breta og fólks frá öðrum löndum hefur nú þegar safnast saman við þær götur sem konungshjónin fara um vegna krýningarinnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×