Erlent

Stendur frammi fyrir áralangri fangelsisvist fyrir lekann

Samúel Karl Ólason skrifar
Jack Teixeira var handtekinn í gær.
Jack Teixeira var handtekinn í gær. AP/WCVB

Jack Teixeira, sem grunaður er um að hafa lekið leynilegum upplýsingum á netið, hefur verið ákærður. Ákærurnar eru tvær en önnur þeirra snýr að því að hann hafi náð í leynilegar upplýsingar án heimildar og að hann hafi tekið þær án heimildar.

Hann stendur frammi fyrir því að vera dæmdur í áralangt fangelsi en hve langt er óljóst að svo stöddu en BBC segir hann geta verið dæmdan til fimmtán ára fangelsisvistar. Mögulegt er að ákærum verði bætt við seinna meir.

Teixeira var fluttur fyrir dómara í Boston í dag og saksóknarar segja að hann muni sitja inni þar til á miðvikudaginn, þegar hann mætir aftur í dómsal. Hann var handtekinn í gær eftir nokkurra daga rannsókn Alríkislögreglu Bandaríkjanna.

Fréttakona CNN hefur eftir heimildarmönnum sínum að Teixeira hafi starfað fyrir leyniþjónustudeild flugþjóðvarðliðsins sem tekur við leynilegum upplýsingum úr ýmsum áttum og setur það saman í kynningarefni fyrir æðstu yfirmenn varnarmálaráðuneytisins og ráðamenn.

Teixeira vann þó ekki við gagnagreiningu, samkvæmt CNN, heldur vann hann við viðhald á kerfinu sem notað er til að safna gögnunum saman og halda því við. Þess vegna hafi hann verið með leyfi til að meðhöndla leynileg gögn.

Hinn 21. árs gamli Teixeira deildi myndum af leynilegum skjölum með ungum vinum sínum á fámennu spjallborði á samskiptaforritinu Discord. Vinir hans segja hann hafa viljað sýna þeim hvernig stríð væri í raunveruleikanum.

Á þessu spjallborði deildu hinir ungu menn mest sín á milli ummælum um byssur og tölvuleiki auk rasísks gríns.

Teixeira byrjaði að deila leynilegum upplýsingum með hópnum fyrir nokkrum mánuðum en það var ekki fyrr en í byrjun apríl sem myndir sem hann hafði tekið af leynilegum skjölum rötuðu á almenna samfélagsmiðla og í fjölmiðla, með viðkomu á spjallborðum um áhrifavald frá Filippseyjum og Minecraft.

Meðlimir hópsins kynntust fyrst í gegnum netið á öðru spjallborði Discord tileinkuðu bandarískum manni sem kallar sig Oxide og birtir byssumyndbönd á Youtube. OG bauð meðlimum þessa spjallborðs í Thug Shaker Central, sem er rasískur brandari, þar sem þeir áttu að geta rætt sín á milli um tölvuleiki.

Í hópnum voru aðrir menn frá Bandaríkjunum, Austur-Evrópu og Suður-Ameríku.

Rannsakendur FBI gefa til kynna í dómskjölum að Teixeira hafi hætt að skrifa færslur um leynilegar upplýsingar sem hann fór yfir í vinnunni og þess í stað prentað út skjöl, tekið þau heim og birt myndir af þeim, af ótta við að hann yrði gómaður í vinnunni.

Vinir hans í hópnum höfðu áður sagt fjölmiðlum að hann hefði orðið reiður yfir því að færslur hans hefðu fengið litla athygli og að það tæki hann styttri tíma að birta myndir af skjölum.

Þá segir einnig í dómskjölum, samkvæmt AP fréttaveitunni, að Teixeira hafi leitað að orðinu „leki“ í áðurnefndu kerfi, þann 6. apríl, sama dag og frétt um skjölin birtist í New York Times. Talið er að hann hafi verið að leita að upplýsingum um rannsóknina að þeim sem leituðu hans.

Blaðamenn Washington Post ræddu við einn meðlim hópsins en hluta af samtali þeirra má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Um­fangs­mikill gagna­leki veldur titringi í Was­hington

Umfangsmikill leki leynilegra skjala hefur valdið titringi í Washington. „Við vitum ekki hver stendur að baki þessu, við vitum ekki hver ástæðan er,“ sagði John Kirby, talsmaður Hvíta hússins í þjóðaröryggismálum, eftir að greint var frá lekanum í gær.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×