Fótbolti

Sjáðu ótrúleg mistök sem komu Valgeiri Lunddal og félögum á bragðið

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Valgeir Lunddal Friðriksson.
Valgeir Lunddal Friðriksson. vísir/Getty

Valgeir Lunddal Friðriksson var á sínum stað í byrjunarliði Hacken þegar liðið fékk Hammarby í heimsókn í 2.umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag.

Leikurinn var rétt nýhafinn þegar markvörður Hammarby gerði sig sekan um algjörlega ótrúleg mistök sem gaf Hacken forystuna í leiknum. Sjón er sögu ríkari og má sjá myndband af markinu hér fyrir neðan.

Þetta kveikti rækilega í hinum tvítuga Benie Traore sem fékk þarna mark á silfurfati og fylgdi því eftir með að skora önnur tvö mörk í fyrri hálfleik; fullkomnaði þar með þrennu sína og sá til þess að Hacken leiddi 3-0 í leikhléi.

Hammarby náði að klóra í bakkann með marki eftir tæplega klukkutíma leik en 3-1 sigur Hacken staðreynd.

Valgeir Lunddal lék allan leikinn fyrir Hacken sem er með fullt hús stiga eftir tvo leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×