Lífið

Páskaspá Siggu Kling - Bogmaðurinn

Sigga Kling skrifar

Elsku Bogmaðurinn minn, nú reynir á það að þú finnir rétt úrræði til að komast áfram á þeim hraða sem þú vilt vera á. Það reynir líka á það að þú sleppir þessum áhyggjukílóum sem þyngja þig. Það er endurnýjun að eiga sér stað í umhverfinu þínu og þú þarft að endurhugsa margt upp á nýtt. Þetta er áskorun sem að mun sýna þér að þú ert þrælvel gefinn og ert með ráð undir rifi hverju.

  • Bogmaðurinn er frá 22. nóvember til 21. desember.

Það er mjög margt og mikið að gerast núna á næstu þremur mánuðum, þú ert að undirbúa sjálfan þig til að standa sterkur og klára málin eins og þér einum er lagið. Það mun ganga vel í prófum, verkefnum og vinnu, en hugaðu líka að því að hafa gaman af því sem þú gerir, þá verður allt mikið léttara.

Ef þér finnst að þú sért kominn í einhverskonar ógöngur, þá þarftu strax að skrifa póst til þeirra sem ráða og athuga hvern þú þekkir sem getur ýtt á eftir hlutunum með þér. Þetta er andlegur tími og skiptir öllu máli að þú finnir þér leiðir til að hafa jafnvægi. Það er mikið að breytast í kringum þig og út um allan heim sem á eftir að hafa mikil áhrif.

Þó að þú sért opin og sterk persóna, þá ertu viðkvæmari en fólk gerir sér grein fyrir. Þú tekur hlutina samt nærri þér, en hefur þann drifkraft að láta aðra halda að allt sé í lagi. Það þarf nefnilega stundum að „feika það til að meika það” og þú ert að gera rétt. Þú ert að engu leyti þunglyndur, þú ert bara viðkvæmur.

Það eru sérstakir töfrar sem fegra ástarlíf þitt einstakri fegurð. Ekki samt hleypa að þér einhverjum eilífðar vitleysingi, því þá tekur það allan þinn mátt að vera sífellt að bjarga því sambandi, svo lokaðu á það.

Knús og kossar, Sigga Kling






Fleiri fréttir

Sjá meira


×