Fótbolti

Dagný skoraði þegar West Ham féll úr leik í bikarnum eftir vítaspyrnukeppni

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ekkert bikarævintýri hjá West Ham í ár.
Ekkert bikarævintýri hjá West Ham í ár. vísir/getty

Dagný Brynjarsdóttir og stöllur hennar í West Ham eru úr leik í enska bikarnum eftir tap gegn Aston Villa í vítaspyrnukeppni í dag.

Dagný lék allan leikinn fyrir West Ham og skoraði eina mark þeirra í leiknum þegar hún jafnaði í 1-1 í uppbótartíma venjulegs leiktíma.

Ekkert mark var skorað í framlengingunni og var því gripið til vítaspyrnukeppni.

Þar var Dagný fyrst til að stíga á punktinn og skoraði hún úr sinni spyrnu. Í kjölfarið tók við æsispennandi keppni sem lauk með 6-7 sigri Aston Villa sem fer því áfram í 8-liða úrslit keppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×