Hlaut heilahristing og fór úr kjálkalið en er allur að koma til Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 18. febrúar 2023 08:00 Jóhannes Berg Andrason fékk þungt högg í leik FH og Fram um síðustu helgi. Vísir/Stöð 2 Jóhannes Berg Andrason, leikmaður FH í Olís-deild karla í handbolta, er á batavegi eftir að hafa farið úr kjálkalið gegn Fram um síðustu helgi. Hann gat borðað sína fyrstu máltíð eftir slysið síðastliðinn fimmtudag og er allur að braggast.
Jóhannes lenti í árekstri við liðsfélaga sinn í FH og var í framhaldinu fluttur á sjúkrahús, enda leit þetta ekki vel út. „Ég sem sagt fæ svakalegt högg. Ég og Jón Bjarni [Ólafsson] rekumst þarna saman og ég bara í rauninni dett þarna út skömmu eftir. Ég man í rauninni lítið eftir mér í korter eftir slysið. Ég fer úr kjálkalið og hlýt heilahristing í kjölfarið,“ sagði Jóhannes í samtali við Stöð 2 í gær. Jóhannes segir að næstu klukkustundir hafi verið virkilega erfiðar og að nóttin eftir slysið hafi að miklu leyti farið í að glíma við eftirköst heilahristingsins. „Nóttin og kvöldið eftir leikinn gegn Fram var bara vonlaus. Ég var bara ælandi og allt þetta basic sem gerist þegar maður fær heilahristing skilst mér. En síðan er kjálkinn eiginlega búinn að vera meira vesen síðustu daga. Ég borðaði fyrstu máltíðina í gær sem var ekki fljótandi.“ „En þetta er bara búið að ganga fínt og ég finn mun dag frá degi. Þannig að ég er á batavegi allavega.“ Þá segist Jóhannes ekki geta sagt til um hvenær hann muni snúa aftur á völlinn. „Ég eiginlega get ekki sagt neitt. Maður verður náttúrulega bara að hlusta á lækna og þeir segja að þetta sé allavega vika og svo sjáum við til. En ég held að þetta aðeins lengra en vika. Gefum þessu allavega fram yfir leikinn gegn Gróttu og svo er náttúrulega Haukar-FH vikuna á eftir því.“ Þrátt fyrir þetta þunga högg segist Jóhannes ekki endilega óttast það að mæta á völlinn aftur. „Ég held að þegar maður er kominn í leik þá gleymi maður þessu. En ég veit það ekki, þetta er rosa óvissa.“ Viðtalið við Jóhannes í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Viðtal við Jóhannes Berg
Mest lesið Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Körfubolti Ekki gott kvöld fyrir Ísland í Evrópu- og Sambandsdeildinni Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 33-35 | Appelgren gerði útslagið Handbolti Háttsettur meðlimur CAF fordæmir „viðurstyggilega“ ákvörðun Fótbolti „Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ Handbolti Sögulegur samningur Víkinga Íslenski boltinn „Búnir að vera þrír úrslitaleikir og það er einn í viðbót eftir“ Körfubolti Albert með stoðsendingu þegar Fiorentina fór áfram Fótbolti Uppgjör: Þór Þ.-Njarðvík 109 - 72: Þórsarar lifa í voninni eftir öflugan sigur Körfubolti Fleiri fréttir Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Háttsettur meðlimur CAF fordæmir „viðurstyggilega“ ákvörðun „Vörnin var ekki nægilega góð og við eigum inni þar“ „Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Uppgjörið:Keflavík - Valur 85-88| Valur tryggði heimaleikjaréttinn í fyrstu umferð Ekki gott kvöld fyrir Ísland í Evrópu- og Sambandsdeildinni Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 33-35 | Appelgren gerði útslagið „Erum svekktir að við séum búnir að missa nokkra leiki hér og þar“ „Búnir að vera þrír úrslitaleikir og það er einn í viðbót eftir“ Uppgjör: Þór Þ.-Njarðvík 109 - 72: Þórsarar lifa í voninni eftir öflugan sigur Freyr stýrði Brann inn í undanúrslit bikarsins Uppgjör: Ármann-Grindavík 103-87 | Rúlluðu upp deildarmeisturunum Nottingham Forest og Crystal Palace fóru bæði áfram Albert með stoðsendingu þegar Fiorentina fór áfram „Algjörlega óviðunandi að senda mína leikmenn út í óvissuna“ Friðrik Leó og félagar fóru auðveldlega yfir fyrstu hindrunina Uppgjörið: ÍR - KR 102-99 | Hetjuleg endurkoma ÍR-inga Foringinn fagnar endurkomu Norður-Kóreu á HM „Við sniðgöngum Bandaríkin en ekki HM“ Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Guðrún Brá í góðri stöðu eftir einn besta hringinn á ferlinum Messi kominn í 900 mörk Besta sætið: Ónýt dekk og Svíar í hefndarhug Frábært að sleppa við austantjaldið Sögulegur samningur Víkinga Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Samningur í höfn: Írar treysta Heimi fyrir EM á heimavelli Blindröðun í beinni: Sígó í stúkunni og sjúkur snúningur Kane Sögulegur viðburður í beinni útsendingu á Sýn Sport Sjá meira