Atburðarásin í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins heldur áfram að þróast. Í dag ákvað forysta Eflingar að draga stjórnsýslukæru sína til félags- og vinnumarkaðsráðherra vegna miðlunartillögu ríkissáttasemjara sem lögð var fram á mánudag til baka og kæra framlagningu tillögunnar þess í stað til Héraðsdóms.

Sólveig Anna Jónsdóttir segir viðbrögð ráðuneytisins við stjórnsýslukærunni hafa verið alltof sein.
„Þannig að við höldum að þetta sé skynsamari og betri leið fyrir okkur að fara. Einnig í ljósi alvarleika málsins, þá er þetta eðlilegri staður til að fara á teljum við,“ segir Sólveig Anna.
Það er stór dagur í deilunni á morgun þegar málflutningur fer fram í máli Samtaka atvinnulífsins gegn Eflingu í Félagsdómi um friðarskyldu deiluaðila eftir að miðlunartillaga hefur verið lögð fram. Þá verður einnig málflutningur í máli ríkissáttasemjara fyrir Héraðsdómi þar sem hann krefst úrskurðar um að Eflingu beri að afhenda embættinu kjörskrá sína svo hægt verði að greiða atkvæði um miðlunartillögu hans. Á morgun hefst einnig atkvæðagreiðsla um viðbótarverkföll á hótelum og hjá bílstjórum olíufélaga og Samskipa.

Sólveig Anna segir málatilbúnað Samtaka atvinnulífsins um friðarskyldu um leið og Eflingu hafi verið afhent miðlunartillaga fáránlegan.
„Þetta er náttúrlega eins langsótt og furðulegt eins og hægt er að hugsa sér. Við erum ekki á svipaðri vegferð. Okkar málatilbúnaður er í engu langsóttur eða furðulegur. Hann er tengdur raunveruleikanum sem við búum í. Við teljum að miðlunartillagan sé ólögleg,“ segir formaður Eflingar.
Það sama eigi við um framferði ríkissáttasemjara; hvernig tillagan var unnin og lögð fram brjóti einnig gegn lögum sem honum beri að starfa undir. Það væri mikilvægt að skera úr um þetta með skýrum og skjótum hætti.
Sólveig Anna segir engar sáttamiðlanir hafa átt sér stað frá því miðlunartillagan var lögð fram. Í raun hafi ríkissáttasemjari aldrei gert heiðarlega tilraun til að miðla málum og því væri þessi staða komin upp.

„Á þessum tímapunkti er það auðvitað svo að stjórn Eflingar hefur lýst vantrausti á ríkissáttasemjara. Þannig að ég get ekki séð að hann gæti tekið að sér á þessum tímapunkti að miðla einhverju í þessari deilu.“
Efling muni hlýða lögbundinni skyldu og svara kalli sáttasemjara um fund en þaðmyndi ekki skila árangri. Það ætti að vera lítið mál fyrir vinnumarkaðsráðherra að leysa úr því.
„Og setja einhvern sem bæri þá titilinn aðstoðarríkissáttasemjari í deiluna. Það held ég ef viljinn væri fyrir hendi væri ekki erfitt að gera,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir.