Fótbolti

Kærkominn sigur hjá Chelesa - Gott gengi Newcastle heldur áfram

Hjörvar Ólafsson skrifar
Chelsea-maðurinn Kai Havertz vinnur hér baráttuna við Vicente Guaita, markvörð Crystal Palace, í leik liðanna í dag.  
Chelsea-maðurinn Kai Havertz vinnur hér baráttuna við Vicente Guaita, markvörð Crystal Palace, í leik liðanna í dag.   Vísir/Getty

Leikmenn Chelsea veittu Graham Potter, knattspyrnustjóra liðsins, andrými með því að leggja Crystal Palace að velli með einu marki gegn engu í 19. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta karla í dag. 

Það var þýski framherjinn Kai Havertz sem skoraði sigurmark Chelsea í leiknum en þetta var fyrsti sigur liðsins í deildinni á þessu ári. Fyrir þennan leik hafði Chelsea beðið ósigur í þremur af síðustu fjórum deildarleikjum sínum og gert eitt jafntefli. 

Chelsea komst upp að hlið Liverpool í níunda til tíunda sæti deildarinnar með þessum sigri en liðin hafa hvort um sig 28 stig. Chelsea og Liverpool eru tíu stigum á eftir Newcastle United sem hafði betur gegn spútnikliði deildarinnar, Fulham. 

Lokatölur í þeim leik urðu 1-0 fyrir Newcastle United en það var sænski sóknarmaðurinn Alexander Isak sem tryggði lærisveinum Eddie Howe stigin þrjú. 

Newcastle United og Manchester United eru jöfn að stigum, með 38 stig, í þriðja til fjórða sæti deildarinnar. Manchester City er þar fyrir ofan með 39 stig og Arsenal trópnir á toppnum með 44 stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×