Fótbolti

Hörður og félagar byrja árið á sigri

Valur Páll Eiríksson skrifar
Hörður Björgvin er að gera gott mót í Grikklandi.
Hörður Björgvin er að gera gott mót í Grikklandi. Robbie Jay Barratt/Getty Images

Landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon og liðsfélagar hans í Panathinaikos hófu nýtt ár á sigri í grísku úrvalsdeildinni. Liðið leiðir deildina.

Hörður Björgvin byrjaði í miðri vörn Panathinaikos og spilaði allan leikinn er liðið vann 1-0 útisigur á Levadiakos í dag. Slóvenin Benjamin Verbic skoraði eina mark leiksins á 35. mínútu.

Panathinaikos hefur nýtt á því á sigri en liðið hafði gert jafntefli í báðum deildarleikjum sínum eftir að HM-hléinu lauk fyrir áramótin. Þau jafntefli eru tvö af þremur hjá liðinu í deildinni en allir hinir 13 leikir liðsins hafa unnist.

Panathinaikos er því taplaust á toppi deildarinnar með 42 stig, sjö á undan AEK Aþenu sem á leik inni í öðru sæti.

Guðmundur Þórarinsson var utan leikmannahóps OFI Crete sem gerði markalaust jafntefli við Volos á heimavelli í sömu deild. Krítarliðið er með tólf stig í tíunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×