Eldur logaði í þaki fjölbýlishúss í Hafnarfirði Árni Sæberg skrifar 17. desember 2022 20:05 Mikill viðbúnaður er á svæðinu. Ingibjörg Gestsdóttir Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu vann að því fyrr í kvöld að ráða niðurlögum elds sem kviknaði í þaki fjölbýlishúss við Breiðvang í Hafnarfirði. Að sögn Bjarna Ingimarssonar, vakthafandi varðstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinum, hafði eldurinn náð að breiða sér um þakið og í einn stigagang. Þrátt fyrir það hafi gengið vel að slökkva eldinn og það án þess að þurfa að rífa þakið. „Það er auðvitað mjög gott í svona veðri,“ segir hann. Hann segir slökkviliðið að mestu hafa lokið störfum á vettvangi og að verið sé að ganga frá síðustu bílunum. „Núna tekur lögreglan við og tryggingafélögin að gera allt fínt fyrir íbúana fyrir jólin,“ segir Bjarni. Þá segir hann að nokkur reykur hafi myndast og því sé líklegt að ráðast þurfi reykræstingu. Frá vettvangi í kvöld.Ingibjörg Gestsdóttir Hann segir að húsið hafi verið rýmt íbúum komið í fjöldahjálparstöð sem opnuð hefur verið í nágreninu. Frá Breiðvangi í kvöld.Ingibjörg Gestsdóttir Hann segir að um það bil sextíu manns hafi þegar verið kallaðir út vegna eldsins, í ofanálag við þá sem þegar voru á vaktinni. Slökkviliðsmenn eru að ganga frá á vettvangi.Aðsend/Óli Jón Fréttin hefur verið uppfærð. Veistu meira um málið? Vísir tekur við ábendingum, myndum og myndböndum á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Slökkvilið Hafnarfjörður Mest lesið Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira
Að sögn Bjarna Ingimarssonar, vakthafandi varðstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinum, hafði eldurinn náð að breiða sér um þakið og í einn stigagang. Þrátt fyrir það hafi gengið vel að slökkva eldinn og það án þess að þurfa að rífa þakið. „Það er auðvitað mjög gott í svona veðri,“ segir hann. Hann segir slökkviliðið að mestu hafa lokið störfum á vettvangi og að verið sé að ganga frá síðustu bílunum. „Núna tekur lögreglan við og tryggingafélögin að gera allt fínt fyrir íbúana fyrir jólin,“ segir Bjarni. Þá segir hann að nokkur reykur hafi myndast og því sé líklegt að ráðast þurfi reykræstingu. Frá vettvangi í kvöld.Ingibjörg Gestsdóttir Hann segir að húsið hafi verið rýmt íbúum komið í fjöldahjálparstöð sem opnuð hefur verið í nágreninu. Frá Breiðvangi í kvöld.Ingibjörg Gestsdóttir Hann segir að um það bil sextíu manns hafi þegar verið kallaðir út vegna eldsins, í ofanálag við þá sem þegar voru á vaktinni. Slökkviliðsmenn eru að ganga frá á vettvangi.Aðsend/Óli Jón Fréttin hefur verið uppfærð. Veistu meira um málið? Vísir tekur við ábendingum, myndum og myndböndum á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið? Vísir tekur við ábendingum, myndum og myndböndum á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Slökkvilið Hafnarfjörður Mest lesið Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira