Lífið

Brúðkaup ársins 2022

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Loksins var hægt að halda brúðkaup eftir heimsfaraldur.
Loksins var hægt að halda brúðkaup eftir heimsfaraldur. Samsett/Vísir

Á hverju ári greinum við á Vísi frá brúðkaupum og hér fyrir neðan má sjá yfirferð yfir þekkta Íslendinga sem gengu í hnappelduna á árinu 2021.

Samfélasmiðlastjarnan og verkfræðingurinn Katrín Edda giftist Markusi Bande við litla og fallega athöfn í ráðhúsinu í Þýskalandi í janúar þar sem tíu manna samkomutakmarkanir voru þá í gangi. 

Ellefu dögum fyrir brúðkaupið greindist Markus með Covid og við tóku taugatrekkjandi dagar í von um að Katrín myndi sleppa við veiruna svo ekki þyrfti að fresta brúðkaupinu.

Katrín og Markus kynntust árið 2018 þegar hann bauð henni á stefnumót í gegnum Instagram. Fyrsta stefnumótið var göngutúr að vatni og hefur ástin verið að blómstra síðan.

Dóra Jóhannsdóttir leikkona og Egill Egilsson gengu í hjónaband þann 12. febrúar síðastliðinn. Dóra birti fallegar brúðkaupsmyndir á samfélagsmiðlum frá stóra deginum. Þau skildu svo síðar á árinu og hafa haldið hvort í sína áttina.

Kyn­fræðing­ur­inn Sig­ríður Dögg Arn­ar­dótt­ir og Sæv­ar Eyj­ólfs­son gengu í hjónaband í maí og það var dragdrottning í New York sem gaf þau saman. Þau byrjuðu sambandið sitt í gegnum Tinder reikning vinkonu Siggu Daggar sem „matchaði“ við hann. 

Parið hefur verið sam­an síðan árið 2020 en þau trú­lofuðu sig í des­em­ber á síðasta ári. Þau voru bæði fráskilin þegar þau tóku saman en þekktust lítillega áður en ástin gerði vart við sig.

Knattspyrnukappinn Jóhann Berg Guðmundsson og lögfræðingurinn Hólmfríður Björnsdóttir gengu í hnapphelduna í júní og var athöfnin haldin á hótelinu La Finca Resort á Suður Spáni.

Parið trúlofaði sig árið 2018 og eiga þau saman tvö börn, stúlku fædda 2016 og dreng fæddan 2020. Bónorðið bar Jóhann upp í Grikklandi.

Fjölskyldan er nú búsett í Bretlandi þar sem Jóhann leikur með enska liðinu Burnley. Brúðkaupsgestirnir voru um 170 talsins og fór athöfnin fram undir berum himni.

George Leite eigandi Kalda bars giftist ástinni sinni Anaïs Barthe Leite í júlí við fallega athöfn í Suður-Frakklandi. Hitabylgjur geisuðu yfir meginlandið en kom það þó ekki að sök. 

„Þrátt fyrir 38 stiga hita var þetta glæsilegur viðburður sem við áttum með bestu vinum okkar og fjölskyldu.“

Ilmur Kristjánsdóttir leikkona og Magnús Viðar Sigurðsson framleiðandi giftu sig í júlí við fallega athöfn í Skúlagarði í Ásbyrgi þar sem veðrið lék við gesti og dansað var fram á bjarta nóttina.

Ilmur og Magnús kynntust árið 2008 og búa saman í Laugarneshverfinu ásamt tveimur börnum sínum.

„Þetta var bara geggjað brúðkaup, þetta var einn af fjórum góðum veðurdögum í Ásbyrgi á þessu ári. Himnarnir bara opnuðust, það voru æðislegir söngvarar og frábær hljómsveit frá San Fransisco,“ sagði Ilmur um brúðkaupið.

„Þetta var svona fjölskyldubrúðkaup, mikið af börnum sem dönsuðu síðan með og þetta var bara eins og í sögu.“ 

Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Katla Margrét Þorgeirsdóttir veislustýrðu hátíðarhöldunum og Róbert Marshall stýrði brekkusöng.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata giftist Rafael Orpel við fallega athöfn undir stjórn Arnars Snæberg hjá Siðmennt í ágúst. Sunna skartaði bleikum og gylltum brúðarkjól sem hún var í skýjunum með og tengist náið ævagamalli ást hennar á fatnaði og sögum frá 18. öldinni. Blaðamaður tók púlsinn á Sunnu og fékk að heyra nánar frá draumadeginum.

Veislan var haldin á Fólkvangi á Kjalarnesi þar sem hjúin fögnuðu ástinni með vinum og fjölskyldu. Brúðkaupið hafði staðið lengi til þar sem þau ætluðu upphaflega að gifta sig árið 2020 en svo reið heimsfaraldur yfir.

Edda Her­manns­dóttir, sam­skipta­stjóri Ís­lands­banka, og Rík­harður Daða­son, fjár­festir og fyrr­verandi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu héldu draumabrúðkaup á Ítalíu í ágúst. Birgitta Haukdal, Ragnhildur Gísladóttir og Andri Guðmundsson sáu um að skemmta gestum í veislunni.

Parið trúlofaði sig árið 2018, í brúðkaupi Ragnhildar Steinunnar og Hauks Inga í Verona á Ítalíu, og tóku á móti sínu fyrsta barni saman á síðasta ári.

Gauti Þeyr Másson og Jovana Schally giftu sig við hátíðlega athöfn í Fríkirkjunni í Reykjavík í ágúst. Parið trúlofaði sig árið 2019. 

Gauti og Jovana eiga saman þrjú börn og hafa verið kærustupar síðan árið 2017.

Matarbloggarinn og bókahöfundurinn Linda Benediktsdóttir gekk að eiga unnusta sinn Ragnar Einarsson í fallegri athöfn. Brúðkaupið fór fram á stóru sveitasetri í Tuscani á talíu.

Nánustu aðstandendur brúðhjónanna flugu út til Ítalíu til þess að taka þátt í stóra deginum. Parið hefur verið saman í þrettán ár en trúlofuðu sig í Frakklandi fyrir sex árum síðan. Saman eiga þau tvö börn og búa saman í Mosfellsbænum þar sem þau byggðu saman einbýlishús.

Leikarinn Pétur Jóhann Sigfússon og Sigrún Halldórsdóttir giftu sig í október við litla athöfn.  Parið kynntist árið 2007 eftir að hún sendi honum skilaboð á Myspace.

Fyrstu kynnin áttu sér stað á svipuðum tíma og Næturvaktin var að hefja göngu sína og parið á sambandsafmæli þann 7. október. Þau eiga bæði dætur fæddar árið 1999 úr fyrri samböndum og eiga einn son saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×