Fótbolti

Bjarni Mark hafði betur gegn Íslendingaliðinu

Hjörvar Ólafsson skrifar
Bjarni Mark Antonsson og félagar hans hjá Start eru í baráttu um að komast í efstu deild. 
Bjarni Mark Antonsson og félagar hans hjá Start eru í baráttu um að komast í efstu deild.  Mynd/Start

Bjarni Mark Antonsson kom inná sem varamaður eftir rúmlega klukkutíma leik þegar Start bar sigurorð af Sogndal með tveimur mörkum gegn einu í norsku B-deildinni í fótbolta karla í dag. 

Jónatan Ingi Jónsson og Valdimar Þór Ingimundarson voru í byrjunarliði Sogndal í leiknum en voru báðir teknir af velli. 

Hörður Ingi Gunnarson hóf hins vegar leikinn á varamannabekk liðsisn en kom inná sem varamaður undir lok leiksins. 

Start er í fjórða sæti deildarinnar en liðið mun taka þátt í umspili um laust sæti í efstu deild á næstu leiktíð. Sogndal siglir hins vegar lygnan sjó um miðja deild. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×