Kristófer átti stórleik í níu stiga sigri Vals gegn Breiðablik í Subway-deild karla á fimmtudaginn. Kristófer var með tvöfalda tvennu í leiknum er hann skoraði 19 stig og tók 13 fráköst en fyrr sama dag var Kristófer viðstaddur í Landsrétti vegna launadeilna við uppeldisfélag hans í Vesturbænum.
„Maður þarf að reyna að aðskilja þetta tvennt [leikvöllinn og dómsal] en það kannski almennt frekar óvenjulegt að vera að mæta í dómsal. Ég var í héraðsdómi í fyrra og þetta var því í annað skipti sem ég mæti [í dómsal]. Ég þurfti ekki að mæta en mér fannst betra að vera á staðnum og fá að fylgjast með. Svo þarf maður bara að setja fókus aftur á leikinn, vinna og skila sínu,“ sagði Kristófer í viðtali við Svövu Kristínu á Stöð 2 í gær. Viðtalið í heild má sjá í spilaranum neðst í fréttinni.
Kristófer viðurkennir að málið rífi upp gömul sár hjá sér en Kristófer hefur verið í launadeilum við KR frá því að hann sagði skilið við félagið fyrir tveimur árum síðan.
„Auðvitað er þetta leiðinlegt og mun alltaf verða leiðindardæmi á mínum ferli við mitt uppeldisfélag. Maður hittir enn þá KR-inga niður í bæ eða hvar sem er sem spyrja út í þetta en maður getur ekki svarað miklu. Þetta er samt þreytt, maður var kannski aðeins búinn að gleyma þessu en eins og í gær [fimmtudag] að mæta aftur [í dómsal] þá er svolítið verið að rífa upp gömul sár,“ sagði Kristófer en niðurstöðu Landsréttar í málinu er að vænta á næstu vikum.
Kristófer lagði KR í héraðsdómi en málið var tekið fyrir þar í janúar á síðasta ári. Kristófer kærði KR vegna vanefnda á samningi sínum við félagið. KR áfrýjaði málinu til Landsréttar og var áfrýjunin tekin fyrir síðasta fimmtudag. Kristófer telur að Landsréttur muni dæma sér í hag líkt og Héraðsdómur gerði.
„Ég held að ég sé sterkt mál í höndunum. Ég held það sé alveg augljóst hvernig þetta mál ætti að enda,“ sagði Kristófer.
Meiðslasaga
Í grunninn snýst málið um laun sem Kristófer fékk ekki greidd. Páll Kolbeinsson, þáverandi gjaldkeri körfuknattleiksdeildar KR, taldi Kristófer ekki eiga launagreiðslur skilið þar sem Kristófer mætti ekki til vinnu, þegar hann var frá vegna meiðsla.
„Ég er bara svo gamaldags að mér finnst að menn þurfi að mæta í vinnu til að geta fengið laun,“ sagði Páll í viðtali við Vísi árið 2020.
Páll og þáverandi stjórn KR heldur því fram að Kristófer hafi leynt meiðslum sínum fyrir félaginu en Kristófer spilaði með brotið bein í fæti í talsverðan tíma og þurfti að fara í aðgerð árið 2014, áður en hann gekk aftur til liðs við KR fyrir tímabilið 2016/17.
Kristófer hefur alfarið neitað því að hafa leynt meiðslum. Þvert á móti lét hann þjálfara og sjúkrateymi KR vita þegar meiðslin tóku sig aftur upp hjá KR.
„Það kom mér verulega á óvart að þeir hentu þessu fram því þá væri ég búinn að vera að leyna þessu [meiðslunum] helvíti vel,“ sagði Kristófer í hlaðvarpinu Undir Körfunni fyrr á þessu ári.
„Ég á þessa mynd enn þá í símanum, þegar ég sendi sjúkraþjálfara liðsins mynd af fætinum mínum þegar hann var allt í einu orðinn tvöfaldur. Þá var ég ekki búinn að vera að gera neitt en varð allt í einu rosa bólginn. Hann [sjúkraþjálfarinn] lét þá [þjálfara og stjórn] strax vita,“ bætti Kristófer við.
Samtal Svövu Kristínar og Kristófers má sjá hér að neðan, ásamt tengdum fréttum um málefnið.